Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG, segir rangt að VG hafi gengið rígbundið til kosninga, án þess að hafa viljað vinna með neinum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í athugasemdum viðFacebook færsluStefáns Pálssonar, sagnfræðings, sem skipaði 2. sæti á lista VG.
Þar reifar Stefán ástæður þess að illa gekk hjá flokknum í kosningunum, þar sem hann fékk tæplega 4 prósenta fylgi og einn borgarfulltrúa. Stefán segir hafa komið snemma í ljós að spenningurinn fyrir fráfarandi meirihluta væri takmarkaður, þó Stefán segi að hann hafi ekki verið beinlínis óvinsæll.
„Eins átti fólk mjög erfitt með að sjá fingraför einstakra flokka á samstarfinu, þar sem þeir hafa kappkostað að slétta yfir allan ágreining eða meiningarmun útávið. Ég hef alltaf verið skeptískur á slíkt í fjölflokkasamstarfi.“
Eins og fram hefur komið gaf Líf það út í gær að flokkurinn hyggðist ekki starfa í meirihluta á þessu kjörtímabili í ljósi slæms gengis. Einn í athugasemdarkerfi við færslu Stefáns segir ljóst að VG hafi ekki viljað með neinum, og að VG hefði átt að segja kjósendum sínum það að atkvæði til þeirra væri atkvæði gegn meirihlutanum.
Líf svarar: „Rangt. Við vildum vinna áfram með núverandi meirihluta. Og við gerðum sannarlega grein fyrir atkvæði okkar.“
Annar segir í athugasemdum að ákvörðun Lífar muni greiða fyrir því að samstarfsflokkar VG í ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn komist í borgarstjórn.
Það stendur ekki á svörum hjá Líf, sem svarar: „Kannski hefði fólk bara átt að kjósa Vg ef það vildi okkur.“