Sólveig Anna Jónsdóttir fyrrverandi formaður Eflingar hefur verið með Abbalabbalá eftir Davíð Stefánsson og Friðrik Bjarnason á heilanum síðan hún sagði skilið við formannsstöðuna.
Sólveg upplýsir um þetta í léttri Facebook færslu. „Kannast lesendur við þetta sem viðbrögð við tráma? Að þurfa að syngja deleringar Davíðs Stefánssonar oft á dag? Er þetta sjálfshatur eða sefjun sem orsakar?
Er ég Abbalabbalá sem bítur og slær eða eru það þau þarna og ég þá Davíð? Hvernig getur svona gerst í heila konu? Hvernig?“
Að síðustu biður Sólveig fylgjendur sína um aðstoð. „Ef að þið hafið reynslu af þessum furðu-hryllingi getiði þá upplýst mig um hvenær í guðs nafni ég get hætt?
Abbalabbaabbalabbaabbalabbalá-abbalabbalabbalabbahjááálp....
Hér má sjá Davíð kyrkja fugl. Hann var greinilega mikið fól.“