Kalt stríð Davíðs og Guð­laugs Þórs? „Á meðan full­orðið fólk stjórnaði utan­ríkis­ráðu­neytinu“

Stak­steinar Morgun­blaðsins í dag hafa vakið nokkra at­hygli enda er þar nokkuð föstum skotum skotið að Guð­laugi Þór Þórðar­syni utan­ríkis­ráð­herra. Leiða má líkum að því að Davíð Odds­son, rit­stjóri Morgun­blaðsins, haldi þar á penna en hann var sem kunnugt er utan­ríkis­ráð­herra frá 2004 til 2005.

Fullorðið fólk og barnapíur

Í Stak­steinum er meðal annars fjallað um setu Ís­lands í mann­réttinda­ráð Sam­einuðu þjóðanna.

„Það er ó­burðugt að fylgjast með utan­ríkis­ráð­herra úr Sjálf­stæðis­flokki síðustu misserin. Yfir­menn hans í ráðu­neytinu dingluðu honum inn í Mann­réttinda­ráð SÞ. Heitið er öfug­mæli og ráðið verður SÞ reglu­bundið til minnkunar,“ segir í stak­steinum.

Þá segir stak­steina­höfundur að borið sé blak af Al­þjóða­heil­brigðis­mála­stofnuninni – stofnun sem sé með allt niðrum sig í al­var­legustu málum sam­tímans.

„For­stjórinn kemur úr Byltingar­flokki Eþíópíu, og neitaði sem heil­brigðis­ráð­herra þar að viður­kenna út­breiðslu kól­eru! Og sem enn verra var; hann gerði svo mann­kyninu ó­bætan­legt tjón með því að hann þumbaðist við til 11. mars !!! að stað­festa að kórónu­veiran smitaðist á milli manna.“

Þá hafi fyrsta verk for­stjóra stofnunarinnar að skipa „ömur­legustu pólitísku fígúru sam­tímans, Muga­be, slátrarann frá Simba­b­ve, sem sendi „sendi­herra góð­viljans“ af hálfu WHO!“

Muga­be hafi þarna verið á loka­metrum sem ein­ræðis­herra. Loka­orðin í stak­steinum eru svona:

„Á sama tíma og yfir­menn ESB eru staðnir að því að láta Kína rit­skoða yfir­lýsingar sínar um kórónu­veiruna á­kváðu þeir, til að dreifa at­hyglinni, með skætingi í garð Ung­verja­lands eins og reglu­lega gegn Pól­landi, sem þeir minna á að sé ekki lengur full­valda ríki vegna aðildar sinnar að ESB. Fyrstu þjóðirnar sem hlaupa til með um­vöndunarprikið þegar ESB ýtir á takka eru skandinavísku barna­píurnar. Á meðan full­orðið fólk stjórnaði ís­lenska utan­ríkis­ráðu­neytinu var þess vand­lega gætt að Ís­land væri ekki ein af barna­píunum.“

Að­stoðar­maður Guð­laugs svarar

Viljinn greindi frá því í dag að Diljá Mist Einars­dóttir, að­stoðar­maður Guð­laugs Þórs, hafi svarað skrifunum í Morgun­blaðinu í dag. Við sama til­efni velti Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans, því fyrir sér á Facebook hvers vegna kalt stríð væri skollið á milli Morgun­blaðsins og Guð­laugs Þórs. „En það er engu að síður stað­reynd. Og stóru orðin síst spöruð,“ sagði hann.

Í færslu Diljár, sem Viljinn vitnaði til, kom hún Guð­laugi til varnar og sagði hann ekki hafa skorast undan þegar leitað var til Ís­lands um setu í mann­réttinda­ráði Sam­einuðu þjóðanna. Varðandi for­stjóra WHO og em­bættis­færslur hans sagði Diljá vand­séð hvernig utan­ríkis­ráð­herra gæti borið á­byrgð á þeim. Varðandi stöðuna í Ung­verja­landi hafi Guð­laugur Þór verið í liði með nor­rænum kollegum sínum, al­þjóð­legum sam­tökum og mann­réttinda­fé­lögum.

„Allt mjög full­orðins, ef þú spyrð mig. En ég er auð­vitað ung og að­hyllist sömu gildi. Og það eru for­réttindi að fram­fylgja slíkri stefnu. Ég hitti fjöl­breyttan hóp fólks frá degi til dags og heyri í enn fleirum. Ef til vill horfðu hlutirnir öðru­vísi við mér ef ég hefði ein­angrað mig uppi á hæð í Ár­bænum,“ segir hún.