Sara Oskarsson, myndlistarkona og fyrrverandi þingmaður Pírata hefur kallað eftir meira hlutleysi í tónlistargagnrýni eftir að nýjasta plata Bjarkar fékk falleinkunn í dómi RÚV.
Dómurinn sem segir plötuna „drepleiðinlega eins og allt sem hefur komið fá henni síðustu 15 árin“ féll alls ekki í kramið hjá gagnrýnandanum Davíð Roach en platan hefur þó verið að fá góða dóma um allan heim.
Þá tekur Sara meðal annars fram að tónlistarsíðan Pitchfork sem jafnan þykir ein virtasta gagnrýnendasíða á tónlist í heiminum hafi gefið henni 8,4 og að Breska blaðið Guardian hafi gefið henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
„Er til of mikils ætlast að fá óháða og faglega gagnrýni hérlendis á verkin hennar Bjarkar?“ spyr Sara og bætir við „Gagnrýni sem er ekki morandi í „mér finnst“ rökum. Þetta er vægast sagt vandræðalegt.“