Kaldi bletturinn sunnan við landið virðist vera að breyta veðurfari

Vísbendingar eru um að sumarið í ár verði í svalara lagi, að því er fram kemur í samtali þeirra Einars Sveinsbjörnssonar, veðurfræðings og Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Þriggja mánaða spá Einars fyrir maí, júní og júlí bendir ekki til annars.

Stóra breytingin, að því er virðist, er þrálátur kaldur sjór við landið, sérstaklega fyrir sunnan og suðvestan land. Þessi kaldi blettur er orðinn viðvarandi og stýrir að einhverju leyti hitafari yfir fyrri hluta sumarsins. Einar segir í viðtalinu í kvöld að þessu ráði líklega breytingar á hafstraumum sem búi til þennan kalda poll – og þar með breytist veðurlagið hér um slóðir, hugsanlega til langs tíma. Hann segir að næstu lönd austan Íslands, Norðurlöndin og Bretlandseyjar muni njóta góðs af svala loftinu yfir Íslandi í sumar.

Í viðtalinu er veturinn gerður upp, en hann fer í sögubækur fyrir tíða veðurhvelli og ítrekaða ófærð á heiðum um allt land, svo og mikið eignatjón, eins og fram kemur í seinni hluta fréttaþáttarins á Hringbraut í kvöld, en þar ræðir Sigmundur Ernir við þau Guðmund Inga Ásmundsson forstjóra Landsnets og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur stjórnarformann Landsnets um lærdóminn sem stjórnendur raforkukerfisins á Íslandi geta dregið af vetrinum sem er að kveðja.