Kakkalökkum fjölgar á höfuðborgarsvæðinu: „Ég hef þá tilgátu að þeir séu að fljúga á milli húsa“

Ameríski kakkalakkinn hefur dreift sér milli húsa á höfuðborgarsvæðinu og hefur kakkalökkum í heild fjölgað töluvert hér á landi síðustu misseri.

Þetta segir Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir í samtali við RÚV en hann segir að ameríska kakkalakkanum hafi fjölgað nokkuð síðustu tvo til þrjá mánuði.

Steinar segir að rekja megi fjölgunina til ferðalaga milli landa og þá geti þeir komið hingað með vöruflutningum. En hvernig er best að koma í veg fyrir að kakkalakkar setjist að hjá manni? Steinar hefur svör á reiðum höndum.

„Ekki skilja eftir óhreint leirtau í vaskinum. Mamma sagði mér það alltaf, að það væri mjög slæmt og ég held að það sé alveg rétt hjá henni. Það laðar þá að. Óhreint leirtau í vaskinum eða matarleifar undir ísskápnum. Ef þeir detta inn um dyrnar hjá þér þá eru meiri líkur heldur en minni á að þeir setjist að hjá þér, því ef það er allt spikk og span eru þeir fljótir að fara í burtu. Þeir stoppa stutt og eru ekkert að fjölga sér inni hjá þér.“

Steinar segir að kakkalakkar hafi dreifi sér um nokkur húsnúmer í nærri því sömu götunni á stór-Reykjavíkursvæðinu. Þetta eigi við um kakkalakka sem fólk heldur sem gæludýr hér á landi og hafa sloppið úr búrum sínum.

„Ég hef þá tilgátu að þeir séu að fljúga á milli húsa. Og það er á einum stað á höfuðborgarsvæðinu - ég segi ekki hvar.“ Steinar segir að mikil dreifing slíkra kakkalakka sé ólíklegt – þeir séu bæði fáir og stórir og færu þá ekki framhjá fólki.

„En annars, ef það er eitthvað vandamál, þá er nú allavega lítið mál fyrir mig að losa fólk við kakkalakka,“ sagði Steinar við RÚV.