„Kæri forsætisráðherra. Þegar þú varst á okkar aldri, er þetta framtíðin sem þú vildir?“
Þetta segir Skrekkshópur Austurbæjarskóla í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag og hefur vakið nokkra athygli. Hópnum er augljóslega mjög umhugað um stöðu flóttamanna hér á landi og er orðunum beint til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
„Kæri forsætisráðherra. Um daginn þegar átti að senda egypsku fjölskylduna úr landi þá sagðir þú að þú værir ekki að beita þér í einstökum málum heldur fyrir kerfisbreytingum, og talaðir um hvað útlendingalöggjöfin væri opnari hér en annars staðar,“ segir í greininni.
Þá er nokkrum spurningum beint til Katrínar sem forvitnilegt væri að fá svör við.
„En þá spyrjum við til baka: Ef við hugsum bara um löggjöf, er þá pláss fyrir mannlega samúð? Þegar þú varst á okkar aldri, 14 eða 15 ára, hvað langaði þig að gera þegar þú yrðir stór? Hvernig samfélag ímyndaðir þú þér að yrði í framtíðinni? Langaði þig líka að Ísland yrði fyrir alla? Viljum við vera þjóð þar sem allir eru eins? Viljum við hafa það orðspor að vera land sem sendir fólk burt sem á ekkert heimili? Eigum við ekki nóg af peningum, af hverju getum við þá ekki hjálpað þeim? Hver ákvað að þau megi ekki eiga heima hérna?“
Í greininni segir hópurinn að verið sé að senda krakka úr landi sem eru hugsanlega bekkjarfélagar eða vinir þeirra.
„Þið eruð að senda burt krakka sem eru þegar orðnir vinir okkar. Eins og Milina, Kemal, Samir, Aya, Leo, Ali, David og öll hin börnin sem hafa verið send úr landi. Af hverju eru þau ekki að skrifa þetta bréf? Kæri forsætisráðherra. Þegar þú varst á okkar aldri, er þetta framtíðin sem þú vildir? Bestu kveðjur, Skrekkshópur Austurbæjarskóla 2020.“