Kærastinn hætti með Huldu rétt fyrir jól – Löngu síðar komst hún að ástæðunni

„Ég var mjög döpur eftir að kærasti hætti með mér í 8.bekk á Þorláksmessu árið 2000,“ segir sálfræðingurinn Hulda Tölgyes á Twitter. Hún hafði ekki hugmynd um ástæðuna, hún kom síðan í ljós:

„Komst að því ekki nema 21 ári seinna að það var vegna þess að hann nennti ekki að finna jólagjöf handa mér. Dude.“

Hulda er alls ekki sú eina sem hefur átt í sambandserfiðleikum rétt fyrir jól en Birna nokkur segir:

„Árið 1998 forðaðist ég kærasta minn til 3 mánaða eins og ég gat yfir jólin því mér fannst ég ekki mega dömpa honum fyrir jól. Gaf honum örugglega glataða gjöf.“

Benna veltir fyrir sér hvað hafi orðið um kærastann:

„Einhverstaðar þarna úti er núna kona að kaupa jólagjafirnar fyrir fjölskylduna hans fyrir hann og vona að þetta árið leggi hann smá hugsun í gjöfina hennar, svona fyrst það er eina gjöfin sem hann þarf að kaupa sjálfur.“

Fjóla nokkur hefur einnig slitið sambandi af furðulegri ástæðu:

„Ég hætti með kærasta í 7 bekk af því að hann mætti með svo svakalega augnsýkingu í skólann.“