K100 tjáir sig ekki um mál Loga: „Af hverju eigum við að gera það?“

Magnús E. Kristjánsson útvarpsstjóri K100, hyggst ekki tjá sig um ástæður þess að Logi Bergmann Eiðsson sé kominn í frí hjá útvarpsstöðinni. Logi Bergmann sagði sama dag og Ari Edwald, Hreggviður Jónsson, Arnar Grant og Þórður Már Jóhannesson fóru í leyfi eða létu af störfum, að hann væri kominn í frí og myndi svo „sjá til hvað gerðist“. Logi hefur sagt að hann sé saklaus af því sem fram kom í máli Vítalíi Lazarevu.

Mannlíf ræddi við Magnús sem sagði að það væri engin þögn um mál Loga: „Þegar við teljum að það sé nauðsynlegt að segja eitthvað um málið þá segjum við það náttúrulega í okkar eigin fjölmiðlum,“ sagði Magnús.

Hann segist ekki telja að K100 eigi að tjá sig um málið:

„Nei, afhverju eigum við að gera það?“ Þá sagðist hann ekkert vita um málið, Logi væri í fríi.