Júlíusi ekki boðið: „Ég virðist vera í sama skammar­krók“

Júlíus Sól­nes, sem gegndi starfi um­hverfis­ráð­herra 1990 til 1991, fékk ekki boð á há­tíðar­höld í til­efni af 30 ára sjálfs­stæðis­sögu Eystra­salts­ríkjanna.

Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag en blaðið hefur undan­farna daga fjallað um að boðs­kort til Jóns Bald­vins Hannibals­sonar hafi borist seint og illa auk fleiri á­lita­efni, til dæmis dag­skrá og ræðu­menn.

Júlíus tjáir sig í at­huga­semd við um­ræðu um málið á Face­book-síðu Þor­valdar Gylfa­sonar prófessors.

„Ég virðist vera í sama skammar­krók og Jón Bald­vin, því að ekki hefur mér verið boðið á þessa ráð­stefnu. Í frétta­til­kynningu frá For­seta Ís­lands kemur fram, að öllum ráð­herrum í ríkis­stjórnum 19881991 og 1991-1995 hafi verið boðið. Ég var einn þeirra, en mér hefur ekki verið boðið,“ segir Júlíus.