Jórunn baunar á Dag vegna nagladekkjanna: „Sett fram í frekar popúlískum tilgangi“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur lagt til að allar bifreiðar Reykjavíkurborgar verði teknar af nagladekkjum, greint er frá þessu í Morgunblaðinuí dag.

Reykjavíkurborg hefur haft þá stefnu að engir bílar eigi að vera á nöglum innan borgarinnar, í kjölfar eftirgrennslan Fréttablaðsins kom í ljós að fjöldmargir bílar á vegum borgarinnar væru á nöglum þvert á fyrstu svör borgarinnar. Starfsmenn heimaþjónustu hafa svo stigið fram og gagnrýnt þetta þar sem hættan á hálku geti verið mikil snemma á morgnanna í úthverfum.

Á móti hefur Dagur borg­ar­stjóri lagt til að þeir starfs­menn sem vegna starfa sinna aka í vetr­ar­færð fái boð í sér­staka fræðslu um akst­ur öku­tækja að vetr­ar­lagi.

Sam­fylk­ing­in á Alþingi hefur lagt til breyt­ing­ar á um­ferðarlög­um sem heim­ila sveit­ar­fé­lög­um að inn­heimta gjald, allt að 40 þúsund krón­um, fyr­ir notk­un nagladekkja.

Jórunn Pála Jónasdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir áformin inni í hópnum Gagnrýnum meirihlutann í Reykjavík á Facebook. Hún segir: „Í greinargerð með tillögunni segir eitthvað á þá leið að ef "sérstakar málefnalegar ástæður" eru til staðar megi leyfa nagla,“ segir hún. „Það og sú staðreynd að það hefur ekki verið rannsakað hvernig þungar sorpbifreiðar fúnkera án nagla bendir til þess að hún sé sett fram í frekar popúlískum tilgangi.“