Jordi flutti til Íslands fyrir átta árum: Aldrei séð eins marga lúxusbíla á götunum og núna

Jordi Pujolá, spænskur rithöfundur og hagfræðingur sem hefur verið búsettur hér á landi síðustu átta ár, segir að lítið fari fyrir kreppunni á Íslandi þó kórónuveirufaraldurinn hafi sett stórt strik í reikninginn hjá ríkissjóði.

Blikur eru þó á lofti og bendir Jordi á að yfirvöld hér á landi hafi staðið sig ágætlega í að halda lífi í efnahagskerfinu með því að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga sem hafa lent í vanda. Sú staðreynd að ríkið sé að borga reikninginn geti þó skapað ákveðinn vanda til lengri tíma litið. Þannig geti ákveðið sýndarástand skapast sem ýtir undir neysluhyggju og eykur skuldsetningu landsmanna í viðkvæmu krónuhagkerfi.

Þetta segir Jordi í pistli sem birtist á vef Vísis í dag.

Jordi nefnir nokkur dæmi máli sínu til stuðnings og bendir á að margt hafi komið honum á óvart þegar hann flutti til landsins fyrir bráðum áratug.

Hann ætlaði til dæmis að kaupa sér íbúð fyrir skemmstu og sá eina álitlega sem hann gerði tilboð í. Tilboðið var upp á uppsett verð en daginn eftir hafði fasteignasalinn samband við hann og sagði honum að hann þyrfti að hækka tilboðið þar sem annað betra hefði komið. Segist hann hafa hugsað með sér að hann þyrfti að bjóða eiganda íbúðarinnar í kvöldverð á Hótel Rangá til að sannfæra hann um að taka sínu tilboði. Svo fór þó ekki og missti hann af umræddri íbúð.

Jordi nefnir fleiri atriði sem benda til þess að allt sé í blóma á Íslandi. „Ég hef aldrei séð eins marga lúxusbíla á götunum og núna. Rúnturinn niður Laugaveg er ekki eins og hann var. Engin merki um gamlar Toyotur, Nissan eða Subaru. Það eina sem maður sér er Porsche, Land Rover, Audi, BMW, Mercedes ... og Tesla var mest seldi bíllinn árið 2020. Þessi borg er eins og Montecarlo.“

Jordi segir að Ísland sé dýrt land, jafnvel fyrir Íslendinga. „Þegar ferðamennirnir byrja að koma aftur þá verða þeir væntanlega í skjóli frá COVID. En þegar þeir sjá verðin munu þeir falla í yfirlið.“

Jordi segir þó að lágu vextirnir muni ekki endast að eilífu og það sé kannski réttara fyrir Íslendinga að fara sér hægt þó hlutirnir líti ágætlega út á yfirborðinu. Þetta eigi kannski sérstaklega við um Ísland enda mörg lán verðtryggð og því viðkvæm fyrir verðbólgu.

Pistil Jordi, sem er skrifaður á ensku, má lesa í heild sinni hér.