Óhætt er að segja að mynd sem birtist á samfélagsmiðlum af íslensku landsliðsmönnunum Ísaki Bergmann Jóhannessyni og Hákoni Arnari Haraldssyni hafi vakið athygli.
Báðir spila þeir fótbolta með stórliði FCK í Danmörku og í vikunni tryggði liðið sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu eftir samanlagðan sigur á tyrkneska liðinu Trabzonspor.
Myndin sem birtist eftir leik sýnir Hákon með kúst í hendi taka til í klefa Kaupmannahafnarliðsins, en leikurinn fór fram á heimavelli Tyrkjanna. Eðli málsins samkvæmt fögnuðu leikmenn FCK ákaft eftir leik enda gríðarlegir hagsmunir í húfi að komast í Meistaradeildina. Umgengnin í klefanum var því kannski ekki til fyrirmyndar – ekki fyrr en Hákon og Ísak tóku til hendinni.
„Ég varð stolt þegar ég sá myndina. Mér finnst líka alltaf gott þegar lið skilja við klefann með sómasamlegum hætti. Það er rétt og fallegt að gera það,“ segir Jónína Halla Víglundsdóttir, móðir Hákonar, í Fréttablaðinu í dag.
Í viðtalinu segir Jónína að FCK haldi vel utan um son hennar sem er aðeins 19 ára gamall og í hópi efnilegustu leikmanna Íslands – þótt víðar væri leitað.
„Hann er búinn að fara í gegnum akademíuna og ég tók strax eftir því að það er ekki bara verið að kenna þeim fótbolta heldur líka verið að horfa í aðra hluti og frágang og annað, hegðun og framkomu, sem er mjög gott. Þegar ég hef farið út að horfa á þessa leiki í yngri flokkunum finnst mér hegðun leikmanna alltaf góð. Bæði gagnvart mótherjum og dómurum. Mér fannst það ákveðinn munur þar og hér á Íslandi. Þeir komast ekkert upp með að vera með einhverja stæla – það er ekkert í boði.“
Umfjöllun Fréttablaðsins í heild sinni.