„Börnin okkar fá óstjórnlega höfuðverki og blóðnasir, útbrot, beinverki, miklir andlegir erfiðleikar, öndunarerfiðleikar og svo lengi mætti telja,“ segir Jónína Sigurðardóttir, meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræðum og ráðgjafi hjá Reykjavíkurborg.
Jónína skrifar grein á Vísi þar sem hún kveðst gáttuð á hræsni borgaryfirvalda. Jónína er móðir barns í Fossvogsskóla en eins og kunnugt er hefur skólinn verið nokkuð til umræðu vegna rakavandamála. Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni en Jónína, eins og aðrir foreldrar barna við skólann, hefur reynt að þrýsta á að eitthvað verði gert.
„Þau eiga það öll sameiginlegt að engin skýring hefur fundist á heilsubresti þeirra og þau lagast öll þegar þau eru ekki í skólanum og fjöldi þeirra barna sem finna fyrir einkennum og veikjast stækkar með hverri viku,“ segir hún og bætir við að það sé ólýsanlega erfitt að standa í slíku máli við Reykjavíkurborg.
„Foreldrum sem eru að leita svara vegna ráðaleysis og ótta af heilsufari barna sinna er bannað að setja sig í samband við aðila sem hafa raunverulega eitthvað um málið að segja og okkur bent á að beina öllum fyrirspurnum til skólastjórnenda. Kennurum barna hefur verið bannað að segja foreldrum frá því hvernig ástandið sé inni í kennslustofum, við komum alls staðar að lokuðum dyrum,“ segir hún.
Bætir hún við að þegar foreldrar hafa reynt að spyrjast fyrir hjá borgaryfirvöldum um hvað eigi að gera hafi þeim verið bent á að vænlegast sé að taka börnin úr skólanum. Segir Jónína að það hljómi eins og leið til að þagga niður í foreldrum.
Jónína vísar svo í þátt Kveiks þar sem meðal annars var rætt við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur, fagstjóra hjá Eflu. Í máli hennar kom fram að gró myglu væru alls staðar.
„Gróin dreifist auðveldlega og hratt en fer ekki að valda skaða fyrr en það kemur raki og þá vaxa gróin upp í myglusveppi. Þetta virðast þeir sérfræðingar sem Reykjavíkurborg hefur ráðið í verkið ekki gera sér grein fyrir. Nýverið kom út skýrsla frá Verkís um stöðuna í húsnæðinu þar sem ítrekað er talað um að það sé verið að taka sýni og mæla gró. Gró sem finnst alls staðar. Það segir sér sjálft að slíkar mælingar skili ekki árangri og segi ekkert til um raunverulega stöðu húsnæðisins.“
Jónína segir að lokum að henni hafi þótt sláandi að heyra í þættinum að Sylgja sagði að hún og samstarfsfólk hennar hafi oft verið beðið um að hagræða niðurstöðum rannsókna þannig að þær komi ekki fram, sem hún segir að þau hafi ekki gert.
„Rétt eins og vandamálið muni einfaldlega hverfa ef það komi ekki fram í skýrslum, staðan er hins vegar sú að vandamál af þessum toga stækkar bara og veldur meiri skaða ef ekki er brugðist hratt og rétt við. Ég er algjörlega gáttuð á hræsni borgaryfirvalda og vona að farið verði eins fljótt og mögulegt er í að taka rétt sýni og forða börnum og starfsfólki frá því að veikjast enn frekar. Þau eiga betra skilið en þetta!“