Jónína Ben: Við eigum ekki að vinna meira en sex tíma á dag

„Þetta á að kenna okkur eitt. Við eigum ekki að vinna meira en svona sex tíma á dag. Það er bara nóg,“ segir Jónína Bene­dikts­dóttir, í­þrótta­fræðingur og at­hafna­kona.

Jónína var gestur Sigur­laugar M. Jónas­dóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 í síðustu viku. Í við­talinu fóru þær Jónína og Sigur­laug um víðan völl og ræddi Jónína meðal annars um á­fengis­neyslu sína á sínum tíma.

Eftir að hafa dvalið lengi í Pól­landi með heilsu­hótel sitt er Jónína komin til Ís­lands þar sem hún býður upp á heilsu­með­ferðir á Hótel Örk í Hvera­gerði. Jónína segist hafa meira að gefa núna en áður.

„Ég gef öðru­vísi, ég hlusta mikið, mikið betur og get tengt. Hjá mér núna eru margir hjúkrunar­fræðingar í det­ox-með­ferð, ör­magna, búnir að ganga upp að öxlum fyrir okkar þjóð eftir CO­VID,“ sagði Jónína í við­talinu og bætti við:

„Að hlusta á þær, ég fæ bara tár í augun. Þeim líður ná­kvæm­lega eins og mér leið þegar ég fór í mitt „bur­nout“. Þetta er al­var­legur sjúk­dómur,“ sagði Jónína í við­talinu en hún lenti í kulnun á síðasta ári. „Ég var úti í Pól­landi og man bara ekkert. Systir mín bjargaði mér, ég rétt komst heim. Þetta tengist bara of­á­lagi og lang­varandi streitu og kvíða,“ sagði hún.

Jónína sagði að hennar reynsla hefði kennt henni að vinnu­dagurinn eigi ekki að vera meira en sex tímar á dag. „Það er bara nóg. Við eigum ekki að taka á­byrgð á öllu í kringum okkur.“

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Jónínu.