Jónína Ben: „Verum ekki galin, Ís­lendingar“ – Munu næstu kosningar snúast um þetta?

„Við erum að glíma við risa og sú glíma tekur oft á þolin­mæðina, ég finn samt að í næstu kosningum verður með­vitað kosið um heilsu, hreint Ís­land, með­vitund um að borða það sem ræktað er í okkar eigin landi.“

Þetta segir Jónína Bene­dikts­dóttir, í­þrótta­fræðingur, det­ox-ráð­gjafi og at­hafna­kona, í at­hyglis­verðum pistli á Face­book-síðu sinni. Þar gerir hún ný­lega frétt um verð á kjöti hér á landi að um­tals­efni, en í frétt Morgun­blaðsins í gær var bent á að að­eins í Sviss sé kjöt dýrara en hér á landi.

„Við erum mörg í heilsu­geiranum sem sjáum hvernig mat­væla­fram­leiðslan er að breytast í sjúk­dóma­fram­leiðslu. Við erum talin of­stækis­full og oft illa menntuð í líf­eðlis­fræði.

Meðan heims­far­aldur flæðir yfir og fólk bíður spennt eftir bólu­efni er allt annað sem hvílir á okkur sem erum meira með­vituð um heildar­myndina hvað varðar nýja sjúk­dóma sem þessi hel­sjúka mat­væla­fram­leiðsla er að gera mann­kyninu,“ segir Jónína í pistli sínum.

Hún segir að á sama tíma og nýjar bakteríur krefjast nýrra tegunda pensi­líns, á sama tíma og öndunar­erfið­leikar aukast meðal barna og á sama tíma og sykur­sýki 2 er far­aldur, þá sé á­herslan lögð á bólu­efni gegn CO­VID-19.

Jónína segir að Ís­land sé ekki undan­skilið gagn­rýni. „Við, hér á Ís­landi erum líka að fram­leiða hættu­legt um­hverfi gegn ó­næmis­kerfi fólks með því hvernig við fram­leiðum mat­væli. Stór egg! Af hverju þurfa eggin að vera stór? Hraður vöxtur dýra! Af hverju liggur á að þyngja dýr fyrir slátrun?,“ spyr hún.

Hún segir að skor­dýra­varnir og eitur­efni í mat­væla­iðnaði sé ekki fyrir fólk því ó­næmis­kerfi okkar sé í hættu. „Stjórn­málin, við­skipta­lífið og aug­lýsinga­markaðurinn styður þessa með­vituðu lömun á ó­næmis­kerfi Ís­lendinga,“ segir hún og bætir við að Ís­lendingar ættu að verja þennan iðnað sem hreina af­urð og án eitur­efna.

Eins og Jónína segir hér að framan gerir hún ráð fyrir að í næstu kosningum verði kosið um heilsu og hreint Ís­land.

„Stöndum saman og segjum upp­hátt, þessi þróun er röng. Röddin okkar heyrist bara ef við stöndum saman gegn of­ríki og blekkingum þeirra sem tala þvert á vísindin og oft gegn eigin sam­visku. Fólki sem heimilar með valdi sínu fram­leiðslu, inn­flutning og sölu á eitur­efnum sem leiða til þess að fólk er lamað af sínum eigin vörnum gegn utan­að­komandi ógnum eins og vírusum og bakteríum, bólgu­myndandi eitur­efnum sem ræðst jafn­vel á öndunar­færi barna okkar,“ segir Jónína sem endar pistil sinn á þessum orðum:

„Verum ekki galin, Ís­lendingar. Þetta er ekki spurning um bragð­laukana, ekki spurning um matar­venjur annarra þjóða. Þetta er að­eins spurning um hversu mikil­væg heilsan okkar er.“