Jónína Ben: Unga stúlkan í bakaríinu fór í vörn og virtist skammast sín

„Draumur minn er að flestum líði sem best. Senni­lega er ég barna­leg,“ segir Jónína Bene­dikts­dóttir, í­þrótta­fræðingur og at­hafna­kona.

Jónína Ben segir frá því á Face­book-síðu sinni að hún hafi skotist út í bakarí í morgun til að ná sér í súr­deigs­brauð. Jónína hefur góða reynslu af um­ræddu bakaríi og segir að þar vinni úr­vals­starfs­fólk, allt gangi eins og vel smurð vél og ekkert sem klikkar.

Það var þó eitt sem vakti at­hygli Jónínu þegar ung af­greiðslu­kona af­greiddi hana.

„Stúlkan var með hreim og eins og alltaf spurði ég: Ertu pólsk? Sorg­legt, en ég fann að hún fór í vörn líkt og það væri skömm að vera af er­lendu bergi brotin en vinna hér,“ segir Jónína sem bætir við að hún finni það iðu­lega að fólk skammist sín fyrir að kunna ekki ís­lensku og haldi raun­veru­lega að það sé ein­hver skömm.

„Ég eignaðist nýja vin­konu í morgun og með bros sögðum við hvor við aðra: „Have a Nice We­e­kend.“

Eins og flestir vita þá hefur Jónína dvalið lang­dvölum í Pól­landi og hún þekkir það því vel að fara af er­lendu bergi brotin í öðru landi. „Ekki get ég lært pólskuna al­menni­lega og hef unnið þar í 18 ár.“

Jónína sendir mikil­væg skila­boð til Ís­lendinga og hvetur þá til að koma vel fram við út­lendinga sem starfa á Ís­landi.

„Verum góð við það fólk sem hér heldur uppi hag­vextinum og hvað með það þótt það læri ekki ís­lensku? Við bjóðum ekki fólki hingað og erum með út­lendinga­for­dóma, er það? Hvað þá að nota fólk í að vinna á ó­lög­legum launum ? Flókið hag­kerfi heimsins kemur okkur úr jafn­vægi, því miður, en það má elska allt fólk sama hvaðan það kemur.“