Jónína Ben: „Það er rosalega margt í íslensku samfélagi sem er helsjúkt, eiginlega ógeðslegt“

Jónína Benediktsdóttir, athafnakona og íþróttafræðingur, segist vera mjög pólitísk og ekki þola misrétti. „Það er rosalega margt í íslensku samfélagi sem er helsjúkt, eiginlega ógeðslegt,“ sagði Jónína í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 á föstudag.

Jónína ræddi þar um allt milli himins og jarðar en hún er nýkomin úr meðferð í Krýsuvík. Hún sér ekki eftir að hafa farið þangað og kveðst stolt af sér fyrir að hafa leitað sér hjálpar. Hennar leið til að róa taugarnar var að nota áfangi en það var eins og að hella olíu á eldinn.

„Allt áfengi eykur kvíða,“ segir hún en hún tjáði sig einnig um hjónabandið við Gunnar í Krossinum og sagði að þau ættu í ágætum samskiptum.

Jónína rak Detox-heilsuhótel hér á landi sem hún segir að hafi verið eyðilagt. „Það var alltaf fullt fyrstu árin en svo komu einhverjir vitleysingar og bjuggu til frétt um stólpípur og skolanir og eyðilögðu viðskiptahugmyndina. Þarna eiga Íslendingar að skammast sín. Það er hægt að taka niður bestu fyrirtækin og mestu frumkvöðlana með rangfréttum.“

Þess vegna ákvað hún að fara með reksturinn til Póllands. Jónína vinnur nú að því að setja upp detoxheilsumeðferð í samstarfi við Hótel Örk í Hveragerði. Jónína sagði að fullbókað sé í fyrsta námskeiðið sem hefst í næstu viku og þar séu 50 manns væntanlegir. Fyrir það kveðst hún vera afar þakklát.

Hér má hlusta á viðtalið við Jónínu í heild sinni.