Jónína Ben lenti í ó­trú­legum ó­göngum í Hveragerði í nótt

Jónína Bene­dikts­dóttir, í­þrótta­fræðingur og at­hafna­kona, á það til að vera spreng­hlægi­leg og í færslu á Face­book-síðu sinni segir hún á býsna skemmti­legan hátt frá ó­göngum sem hún lenti í í nótt.

„Sáuð þið hand­leggs­brotna konu að eltast við trampólín í nótt klukkan þrjú. Konan var í hvítum nær­buxum frá Victoria Secret og nátt­skyrtu frá Boss,“ segir Jónína í færslunni.

Jónína segir að hún hafi barist við trampólínið, náð því inn í skot og skriðið svo eftir grasinu. Ekki vildi betur til en svo að dyrnar höfðu lokast og komst hún ekki inn í húsið fyrr en hún lagðist á magann og ó­brotna höndin náði tökum á kanti sem hjálpaði við að opna dyrnar.

„Konan var síma­laus. Brotna hendin er enn á hand­leggnum, nær­buxurnar komnar í þvott en nátt­skyrtan rifin. Nei, bara ef að þið hafið ekki séð þessi til­þrif þá bíðið eftir næsta roki, þá gæti sagan endur­tekið sig,“ segir Jónína sem hefur fengið þó nokkur við­brögð við færslunni.

„Konan leitar að dug­legum karl­mann sem kann að flokka rusl og taka trampólín í sundur. Betra er ef hann er ekki hand­leggs­brotinn. Sem betur fer var hálkan farin því hefði rokið komið í fyrri­nótt væri þessi kona á brókinni fljótandi á trampólíni í sund­lauginni á Hótel Örk. Já næturnar eru oft skraut­legar í Hvera­gerði,“ sagði Jónína sem endaði færsluna á þessum orðum:

„Ef þetta hefði verið draumur þá merkti hann bara gott, en þar sem þetta var ekki draumur merkir sagan að maður er ekki af baki dottinn.“