Jónína Ben lætur frekjurnar heyra það: „Takið hausinn á ykkur út úr eigin rassi“

Jónína Bene­dikts­dóttir, í­þrótta­fræðingur og at­hafna­kona, hefur fulla sam­úð með starfs­mönnum verslana þessa dagana. Jónína er bú­sett í Hvera­gerði eins og kunnugt er og leggur hún leið sína reglu­lega í verslun Bónus í bænum.

Jónína deildi á­kalli Ragnars Þórs Ingólfs­sonar, formanns VR, á Face­book-síðu sinni í vikunni, en í á­kallinu biðlaði Ragnar Þór til al­mennings um að sýna starfs­fólki verslana kurteisi og virðingu.

„Það kostar ekkert að segja takk fyrir að standa vaktina eða þið standið ykkur eins og hetjur. Verum ó­spar á hrós til þeirra sem standa vaktina og sýnum hvort öðru til­lits­semi,“ sagði Ragnar.

Jónína segir að þeir séu tveir starfs­mennirnir í Bónus sem hafa þjónað henni dyggi­lega síðan hún flutti. „Alltaf spjöllum við, ég spyr út í á­huga­málin, hvort þeir séu þreyttir með grímuna, hvort einn poki dugi, hvort þeir fari ekki út undir bert loft af og til og andi, hvort sé búið að vera mikið af fýlu­prumpu­kerlingum að pirra,“ segir Jónína sem nefnir í fram­hjá­hlaupi að hún hafi eitt sinn spurt þá hvað maðurinn hét sem stofnaði Bónus.

„Nei þeir þekktu ekki Jóhannes, svona er þetta maður gleymist fljótt ef enginn segir söguna,“ segir hún. Jónína endar færslu sína á skila­boðum til þeirra sem líta á starfs­fólk verslana sem sjálf­sagðan hlut´og þeirra sem þurfa, ein­hverra hluta vegna, að sýna þessu mikil­væga fólki dóna­skap.

„Í Guðanna bænum takið hausinn á ykkur út úr eigin rassi, frekju­hundar. Prófið kannski að vinna í Bónus allan daginn með grímu. Vá, hvað ég verð ó­geðs­lega reið þegar heimskt fólk frekjast og hefur ekki efni á neinu sjálft, leggur ekkert af mörkum sjálft. Þannig fólk er það sem glymur hæst í, þeim sem eru að kafna úr minni­máttar­kennd, jafn­vel út í kassa­fólkið í mat­vöru­verslunum.“