Jónína Ben: „Að­gerðin gekk mjög vel“

„Að­gerðin gekk mjög vel og ekkert nýtt kom í ljós. Gunnar kemur heim seinni­partinn. Guð vakti yfir honum og læknunum,“ segir Jónína Bene­dikts­dóttir, fyrr­verandi eigin­kona Gunnars Þor­steins­sonar sem er oft kenndur við Krossinn.

Hring­braut greindi frá því að Gunnar væri á leiðinni í hjarta­þræðingu og gekkst hann undir að­gerðina á Land­spítalanum nú í morguns­árið.

Gunnar hafði verið með verk fyrir hjartanu að undanförnu sem hann leiddi hjá sér. Hann á­kvað þó sem betur fer að láta kanna málið og þá kom í ljós að hann var með krans­æða­þrengingu og þyrfti að gangast undir að­gerð.

„Ég tel tel það mikla mildi að þetta var leitt í ljós. Páll postuli sagði að lífið væri Kristur og dauðinn á­vinningur. Ég tek undir það,“ sagði Gunnar í gær. Nú er aðgerðinni lokið og gekk hún vel, eins og Jónína bendir á í færslu á Facebook-síðu sinni.