Tónlistarmaður Jónas Sigurðsson eða Jónas Sig segir Íslendinga hafa sterka tengsl við hafið og sjávarmenningu íviðtali á K100.
Jónas er að gefa út nýtt lag með Lúðrasveit Þorlákshafnar en í dag eru ár síðan hann gaf út plötuna Þar sem himin ber við haf með lúðrasveitinni.
„Ég finn það líka í tónlistinni minni. Ég gerði lagið Hafið er svart og tengdi sjávarmenningunni. Við Íslendingar eigum rosa sterka taug til hennar. Okkur finnst sjómennska mjög virðingarvert starf og höfum öll einhverja tengingu við hafið. Í undirmeðvitundinni okkar, hvort sem við vitum af því eða ekki,“ segir Jónas í viðtalinu.
Hann segir að innblástur lagsins faðir hafi komið víða en það er tileinkað föður sem féll frá í sumar.
„Það var einn félagi í lúðrasveitinni sem féll frá í sumar. Faðir. Yndislegur maður og faðir vina minna. Við vildum gera lag tileinkað honum,“ segir Jónas sem sagðist hafa sest niður með það í huga að semja lag en lagið sem kom var eins og „litla systir af hinni plötunni“.
„Ég er að fara að klæða mig í sömu föt, gömlu jakkafötin. Þar var svo mikið „konsept“ að nota heimabæinn,“ sagði Jónas og vísaði til heimabæjar síns Þorlákshafnar.
Hægt að hlusta á viðtalið hér.