Jónas Már segir frá ó­hugnan­legri stað­reynd af stofn­fundi ungra sósíal­ista: „Ég er 100% ekki að grínast“

Lög­fræðingurinn og jafnaðar­maðurinn Jónas Már Torfa­son greinir frá heldur ó­hugnan­legri stað­reynd er hann mætti á stofn­fund ungra sósíal­ista á dögunum.

„Hef ég sagt ykkur frá þegar ég mætti á undir­búnings­fund fyrir stofnun ungra sósíal­ista og þar var fólk sem talaði af fullri al­vöru um að skipu­leggja vopnaða byltingu á Ís­landi? Það væri ekkert svo mikið mál. Ég er 100% ekki að grínast,“ skrifar Jónas Már á Twitter en umræða um sósíalisma hefur verið í gangi á Íslandi í dag eftir að Efling ákvað að reka allt starfsfólk sitt.

Roði fé­lag ungra sósíal­ista var stofnað skömmu eftir að Gunnar Smári Egils­son endur­vakti Sósíal­ista­hreyfinguna á Ís­landi.