Jónas er bálreiður: „Ljótu andskotans sóðarnir“ – Sjáðu myndirnar

Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, skammt frá Vík í Mýrdal, deildi heldur óskemmtilegum myndum á Facebook-síðu sinni í morgun. Þar má sjá vægast sagt slæma umgengni túrista sem voru á litlum sendibíl og höfðu dvalið í óleyfi á jörð hans.

Eins og meðfylgjandi myndir sýna skildu þeir meðal annars eftir sig mannasaur og salernispappír.

„Andskotans túristar. Það ætti að banna ALLA kampera á Íslandi, ljótu andskotans sóðarnir. Þegar ég kom að Fagradalsbleikju í morgun var einn á planinu, JRL63. Hann hefði alveg getað hreinsað upp skítinn eftir sig sem hann skildi eftir. Endilega deilið,“ sagði Jónas í færslu sinni.

Fréttavefur DV ræddi við Jónas í dag og í viðtalinu segir hann að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem eitthvað þessu líkt gerist. Hann segir að ábyrgð þeirra sem leigja þessa bíla út hljóti að vera mikil. Hvetur hann rekstraraðila til að brýna fyrir leigutökum að ganga vel um landið.

„Menn geta bara komið hingað heim og beðið um að fá að gista. Þetta er bara einföld kurteisi og ég hef aldrei tekið krónu fyrir eitt né neitt í samband við það,“ segir hann við fréttavef DV sem greindi fyrst frá málinu.