Jóna Hrönn segir magnaða sögu fimm ára drengs sem horfði upp á miklar hörmungar

„Eitt af því dásamlega við mannshugann er hæfileikinn til að kveðja hið liðna og halda áfram í núinu,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Í pistli sínum skrifar Jóna Hrönn um áföll og nefnir að orðið áfall sé stundum notað í hálfgerðu hugsunarleysi.

„En hvað er áfall? Það er þegar persóna upplifir afgerandi hjálparleysi í aðstæðum og ógn við öryggi og líf án þess að geta varist með neinum hætti. Áföll geta verið m.a af völdum slysa, náttúruhamfara og ofbeldis.“

Jóna Hrönn nefnir að áföll breyti svo sannarlega fólki og getur sú breyting verið varanleg. „Þegar áföllin ryðjast yfir rofnar sú öryggisumgjörð sem manneskjur þurfa. Aðstoðin felst þá í því að sá sem varð fyrir áfallinu finni öryggið á ný, finni tilgang eða merkingu með lífinu og hafi góð úrræði og þrói ekki með sér áfallastreituröskun með taugarnar þandar lengi á eftir.“

Jóna Hrönn rifjar svo upp frásögn í bók geðlæknisins Bessel van der Kolk um fimm ára dreng sem var staddur við World Trade Center þegar árásirnar á tvíburaturnana voru gerðar 11. september 2001. Varð pilturinn vitni af miklum hörmungum og horfði meðal annars á fólk hrapa til dauða úr turninum.

„Fáum dögum síðar teiknar barnið mynd af atburðinum. Þar er allt í báli og fári nema undir turninum er einn svartur hringur. Hvað er þetta? spyr læknirinn. Þetta er trampólín, svarar barnið. Til hvers er það? Það er til þess að ef þetta gerist aftur geti fólkið bjargast þegar það hoppar niður! Þarna var fimm ára barnshugur byrjaður að vinna úr reynslu sinni með því að setja hana aftur fyrir sig og hugsa til framtíðar með lausnir í huga.“

Jóna Hrönn segir að eitt það dásamlegasta við mannshugann sé einmitt þetta, að kveðja hið liðna og halda áfram í núinu.

„Sá hæfileiki virkjast þegar við fáum nægan stuðning og tækifæri til að gera hlutina sjálf, líkt og drengurinn litli sem upplifði það að hlaupa á sínum litlu fótum hönd í hönd við þau sem hann treysti best og komast í skjól.“