„Ef við ætlum að halda andlegu þreki og sæmilegri lífsgleði á þessari hörmungatíð þá eru svona ömurlegheit nokkurnveginn það síðasta sem við ættum að veita inntöku,“ segir Jón Viðar Jónsson, einn helsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar til fjölda ára.
Jón Viðar er ekki parhrifinn af sýningum Þjóðleikhússins og RÚV á nokkrum vel völdum leiksýningum nú í aprílmánuði. Eins og kunnugt er þurfti Þjóðleikhúsið – eins og önnur leikhús landsins – að fella niður sýningar vegna samkomubanns. Tilefni sýninganna er einnig 70 ára afmæli leikhússins.
Jóni Viðari þykir ekki mikið til þessara sýninga koma og kveðst hann ekki hafa neina samúð með þeim sem kvarta undan þeim. Á páskadag var Íslandsklukkan sýnd og á laugardagskvöld voru Englar alheimsins á dagskrá. Áður höfðu Kuggur og leikhúsvélin, Hart í bak og í Hjarta Hróa hattar verið á dagskrá.
„Ég sé að hér stynur fólk í ýmsum hornum undan vondum Þjóðleikhússýningum á Netinu. Fyrir mína parta hef ég enga samúð með fólki sem hefur ekki rænu á að slökkva á þessum leiðinlegheitum ef það hefur glapist til að kveikja á þeim og sleppa þeim inn í stofu til sín. Hvað ætli við mættum segja sem þurftum að sitja undir þessu árum saman atvinnu okkar vegna? Nei, ég vorkenni ykkur ekki kæru FB-vinir, en minni ykkur á að eins og góð list er upplífgandi fyrir andann, þá hefur vond list að sjálfsögðu samsvarandi öfuga verkan,“ segir Jón Viðar í færslu á Facebook sem birtist í gærkvöldi.
Jón Viðar hélt gagnrýni sinni áfram.
„Þið getið engum öðrum um kennt en sjálfum ykkur að slampast oní þessa moðsuðu úr Þjóðleikhúsinu sem Ríkisútvarpið er að traktera þjóðina á. Ef við ætlum að halda andlegu þreki og sæmilegri lífsgleði á þesssari hörmungatíð þá eru svona ömurlegheit nokkurnveginn það síðasta sem við ættum að veita inntöku. Mér finnst að þríeykið okkar góða mætti vel minna á það svona öðru hverju,“ segir hann.
Skiptar skoðanir eru um þessi orð Jóns Viðars á Facebook-síðu hans. Sumir taka undir gagnrýnina á meðan aðrir benda á að leiksýningar eigi bara heima á sviði en ekki í sjónvarpi. Einn Facebook-vinur Jóns Viðars segist til dæmis hafa haft gaman af Íslandsklukkunni. Jón Viðar sparar ekki stóru orðin og svarar: „Þú veldur mér sárum vonbrigðum. Hefði haldið að þú hefðir betri smekk!“