Jón Viðar með frábæra hugmynd: „Er ekki hvort eð er allt til sölu í þessu þjóðfélagi okkar?“

Jón Viðar Jónsson, einn helsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar, varpar fram athyglisverðri hugmynd á Facebook-síðu sinni.

Um helgina var greint frá því að framleiðendur Toblerone, súkkulaðisins sem margir Íslendingar þekkja, hefðu neyst til að breyta umbúðunum eftir að hluti framleiðslunnar var fluttur frá Sviss. Í frétt Vísis í gær kom fram að svissnesk lög kveði á um að ekki megi nota svissnesk kennileiti á umbúðum mjólkurvara sem ekki eru framleiddar að öllu leyti í Sviss. Þetta þýðir að ekki má lengur nota Matterhornfjall á umbúðum Toblerone.

Jón Viðar gerði þetta að umtalsefni í gær og varpaði fram athyglisverðri hugmynd.

„Þetta eru ljótu fréttirnar. Toblerone án Matterhorns - meiri smásálirnar þessir Svisslendingar. En ég er með hugmynd og hún er frábær: nú sjáum við Íslendingar okkur leik á borði og bjóðum þeim hjá Toblerone að setja Hraundranga í Öxnadal, já Hraundrangann hans Jónasar, í staðinn,“ sagði Jón Viðar og hélt áfram:

„Það mun enginn sjá muninn, og við gætum stórgrætt - því auðvitað verður súkkulaðirisinn að punga út dágóðum upphæðum fyrir afnotin af þessu náttúrudjásni okkar sem svo miklar tilfinningar eru bundnar við. Er ekki hvort eð er allt til sölu í þessu þjóðfélagi okkar? Eitt þó: ástarstjarnan má alls ekki fylgja með í kaupunum. Þar myndi ég amk setja mörkin (nema við seldum hana sér). Kannski Musk hefði áhuga - hann er jú hvort eð er með allan hugann við himingeiminn.“