Jón Viðar Jónsson, einn helsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar, hrósar Ingólfi Þórarinssyni, Ingó veðurguð, í hástert fyrir þætti hans, Í kvöld er gigg, sem sýndir eru á Stöð 2 á föstudagskvöldum.
„Þessir þættir með Ingólfi Þórarinssyni, Ingó veðurguð, sem eru á eftir fréttum Stöðvar 2 á föstudögum, eru eitt besta efni sem íslenskt sjónvarp býður upp á um þessar mundir,“ segir Jón Viðar á Facebook.
Þetta eru svo sannarlega ekki slæm meðmæli frá Jóni Viðari sem liggur sjaldnast á skoðunum sínum þegar kemur að leikverkum, kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum.
Þættir Ingólfs hófu göngu sína í september síðastliðnum en í þeim fær hann frábæra tónlistarmenn til sín þar sem tónlistin og gleðin er við völd.
„Flottir músíkantar skemmta sér og áhorfendum með líflegum samræðum milli þess sem þeir flytja fjölbreytta og oft hugljúfa músík. Fín upplyfting í faraldrinum,“ segir Jón Viðar.