„Ég get ekki lengur horft á fréttatímann. Ingólfur Bjarni sveimandi í þyrlu yfir Keili - og Sigríður Hagalín búin að planta sér á líklegasta gosstað. Bogi í viðbragðsstöðu. Halda þau að þau séu í einhverri Hollýwoodmynd?“
Þetta sagði Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi, á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi eftir kvöldfréttir RÚV.
Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna daga en jarðskjálfta og yfirvofandi eldgos á Reykjanesskaga. Sumum þykir helst til of mikið gert úr yfirvofandi gosi, sérstaklega í ljósi þess að enn er ekki farið að gjósa.
Ljóst er að margir taka undir með Jóni Viðari í færslu hans. „Þetta er raunveruleikasería með frægum aðalleikurum,“ segir einn á meðan annar bætir við: „Ég upplifi þetta svona...og er hætt að horfa á fréttir, meira ruglið!“
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagðist í færslu á sinni Facebook-síðu vera ósammála þeim sem andvarpa yfir látlausum fréttaflutningi af óorðnu eldgosi.
„Fæ aldrei nóg af bollaleggingum og skýringum á þessum hræringum og vildi að ég hefði verið svona áhugasamur um jarðfræði í menntó. En játa að mér varð á að brosa ögn þegar ég sá fréttamann í þyrlu yfir Keili sem skimaði spenntur í kringum sig og sagði: „Hér er sjöþúsund ára hraun allt í kring ...““
Herdís Þorgeirsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, hitti líklega naglann á höfuðið þegar hún sagði: „Fáránlegt að kvarta yfir of miklum fréttum yfir höfuð. Fólk má þakka fyrir að fá fréttir og svo getur það skrúfað fyrir sjálft.“
Ég get ekki lengur horft á fréttatímann. Ingólfur Bjarni sveimandi í þyrlu yfir Keili - og Sigríður Hagalín búin að...
Posted by Jón Viðar Jónsson on Miðvikudagur, 3. mars 2021