Jón Viðar Jónsson, einn helsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar, gefur kvikmyndinni Dýrinu (e. Lamb) ekki háa einkunn. „Afar vond – og beinlínis leiðinleg,“ segir hann um myndina.
Um er að ræða framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári en miðað við dóm Jóns Viðars eru litlar líkur á að hún hljóti náð fyrir augum akademíunnar.
Jón Viðar gerir myndina að umtalsefni í pistli á Facebook-síðu sinni. Hilmir Snær Guðnason og Noomi Rapace fara með aðalhlutverk myndarinnar sem segir frá sauðfjárbændum í afskekktum dal sem lenda í dularfullum aðstæðum.
„Þetta upphaf virðist lofa góðu, að eitthvað duló og spennandi sé í vændum - en svo reynist bara ekki því miður. Þarna er í rauninni engin frekari saga, nema hvað "dýrið" - sambland af manneskju og kind - tekur að vaxa úr grasi hjá hjónunum sem líta greinilega á það sem sjálfsagðan hlut, jafnvel uppbót fyrir dáið barn þeirra, hafi ég skilið lauslega vísun í þá átt rétt. Skrýtið fólk atarna, verð ég að segja. Ég vil helst ekki segja of mikið, eins og kurteisum krítíker sæmir, um framhaldið, en tilraunir myndhöfunda til að prjóna drama úr þessum sögukjarna fara allar meira og minna út um þúfur,“ segir hann.
Jón Viðar fer svo aðeins dýpra í söguna en segir að endirinn hafi verið sérstaklega slæmur.
„Endirinn - það er leitt að segja það - er svo fjarstæðukenndur og illa undirbúinn, beinlínis kauðslegur, að mér varð á að skella upp úr og heyrði ekki betur en það gerðu fleiri bíógestir. Það er ekkert að frammistöðu leikenda, einkum átti Björn Hlynur góða spretti í hlutverki vonda bróðurins; ég er mest hissa á því að jafn góðir leikarar og hann og Hilmir Snær og hin sænsk/íslenska Noomi Rapace skuli fást til að eyða kröftum sínum í jafn fáfengilegt verkefni; ég er viss um að þau öll hafa úr miklu betri atvinnutilboðum að velja.“