Jón Viðar fengið nóg af vælinu: Hvernig væri nú að treysta bara Þórólfi?

Jón Viðar Jóns­son, einn fremsti leik­hús­gagn­rýnandi þjóðarinnar og sam­fé­lags­rýnir, hefur fengið nóg af um­ræðunni um grímu­skyldu. Á sama tíma og nánast engin CO­VID-19 smit greinast hér á landi dag eftir dag hafa sí­fellt fleiri kallað eftir því að grímu­skylda verði af­numin.

Jón Viðar skrifaði kraft­mikla færslu á Face­book-síðu sína í gær þar sem hann gagn­rýndi þessa orð­ræðu.

„Þetta er nú meiri bar­lómurinn sem gellur við hér á FB um grímu­skylduna. Það var kannski ekki heppi­legt af Þór­ólfi sótt­varna­lækni að missa það út úr sér að við kynnum bein­línis orðið vel við grímurnar, en fyrr má nú vera; maðurinn hefur staðið í víg­línunni í ár, staðið sig á heildina litið frá­bær­lega vel svo við megum öll vera þakk­lát fyrir. Þó honum verði einu sinni smá fóta­skortur á tungunni!“

Jón Viðar segir að grímurnar fari vafa­lítið mis­vel í menn og til dæmis þeir sem ganga með gler­augu, hann sjálfur þar með talinn, geti fundið fyrir ó­þægi­legri móðu­myndun.

„Það drepur varla nokkurn mann nema maður sé alveg upp í öðrum sem gerist nú orðið æ sjaldnar!! Reynum að skilja það að þetta fyrir­komu­lag er (ef ein­hver skyldi ekki vera búinn að fatta það) til að vernda okkur sem heild, ekki síst þá sem mega við litlu; að tala um þetta sem "frelsis­skerðingu" er út í bláinn og lyktar ekki af öðru en pólitískum öfgum,“ segir Jón Viðar sem endar færsluna sína á þessum orðum:

„Ekki vildum við horfa upp á Lands­spítalann og aðrar heil­brigðis­stofnanir springa undan á­lagi, eins og víða hefur gerst, eða fjölda­grafir teknar uppi í Gufu­nesi!! Nei, nú er að sanna að við séum "Sannir Ís­lendingar" sem kunnum að þreyja þorann og góuna og bíða þess að aftur birti á ný - eins og þar stendur!“