Áramótaskaupið féll almennt vel í kramið hjá Íslendingum og eru margir þeirrar skoðunar að það hafi verið eitt það besta frá upphafi.
Einn þekktasti gagnrýnandi þjóðarinnar, Jón Viðar Jónsson, felldi sinn dóm um Skaupið á Facebook-síðu sinni í gær og hann virðist – rétt eins og meginþorri þjóðarinnar – hafa verið nokkuð hrifinn.
„Að gefnu tilefni skal tekið fram að mér þótti Skaupið bara ágætt. Léttilega framreitt samkvæmt formúlunni "Hver maður sinn skammt". Greinilegt að höfundar hafa búið til gátlista yfir helstu fórnarlömbin og byrjað svo að skjóta. En vandað sig líka, svona yfirleitt.“
Jón Viðar heldur áfram:
„Sumir skammtarnir voru vissulega full léttúðugir fyrir minn smekk, en þannig verður það víst að vera. Maður þakkar fyrir að hafa ekki staðið upp með þeim aulahrolli sem of oft hefur fylgt manni inn í nýtt ár eftir gláp á fjarska misjöfn og sum harla léleg Skaup. Sem eru raunar eitt af því fáa sem enn sameinar stóran hluta þjóðarinnar.“