Jón Trausti þakkar Þórólfi: „Bjargað fleiri viðkvæmum lífum en allar Norðurlandaþjóðirnar“

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir hefur staðið í ströngu í baráttunni við Covid-19 faraldurinn á Íslandi í tvö ár. Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Stundarinnar, segir í grein í blaðinu í dag að í hvert skipti sem Þórólfur hafi skipt um skoðun hafi andstæðingar hans litið á það sem veikleika, það hafi í raun verið stöðugt öskrað á Þórólf í tvö ár.

„Þegar fylgt er ráðleggingum Þórólfs segir íhaldsmaðurinn að hann sé „einráður“, en þegar skólum er haldið opnum kvartar annar hópurinn yfir því að viljandi sé verið að láta börn smitast,“ skrifar Jón Trausti.

„Þegar börn eru bólusett er Covid-spyrnan ósátt, en hin sátt. Ein kallar bólusetningar „morðtilraunir“, annar hvetur Þórólf til sjálfskaða. Kona sem hefur meðal annars skrifað fréttir kallaði Þórólf nýlega „loddara“.“

Jón Trausti bendir á að Íslandi hafi gengið skemur en aðrar þjóðir, hér hafi enginn verið neyddur í bólusetningu og engin krafa hafi verið uppi um bólusetningavottorð inn á viðburði.

Hann tekur svo saman dánartíðni af völdum Covid-19 á hverja milljón íbúa í nokkrum löndum:

„Dánartíðni á Íslandi var 128 á hverja milljón íbúa.

Í Noregi 273.

Í Finnlandi 364.

Í Danmörku var hún 650.

Í Þýskalandi 1.422.

Í Svíþjóð, 1.548.

Og í Bandaríkjunum 2.711.“

Jón Trausti segir „húrra fyrir Þórólfi“: „Allt bendir því til að við höfum bjargað fleiri viðkvæmum lífum en allar Norðurlandaþjóðirnar.“