Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Stundarinnar og fyrrverandi ritstjóri, segir mikilvægt fyrir ferðafólk sem kemur við á Eskifirði að átta sig á því að lögreglan fylgist sérstaklega vel með og er í litlum önnum.
„Þetta lærðist í hálftímaheimsókn hjá ættingja í bænum að verðmæti 15 þúsund krónur,“ segir Jón Trausti í færslu á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af límmiða sem lögreglan setti á bílinn. Svo virðist sem Jón Trausti hafi það eitt til sakar unnið að snúa bílnum sínum vitlaust.
„En öryggið verður seint verðmetið og kannski verður það verðmæt auðlind þegar erlendir ferðamenn koma í heimsókn og snúa aftur úr ferðinni með nýfengna öryggiskenndina í farteskinu. Fyrir aðra skiptir mestu að keyra hring í bænum áður en bifreið er lagt þannig að hún snúi örugglega rétt í stæðinu og lögum og rétti viðhaldið á meðan dvölinni stendur. Réttsýna Lögreglan á Austurlandi fær kærar þakkir fyrir kynnin og átakið Snúum rétt!“
Hallgrímur Helgason rithöfundur slær á létta strengi í athugasemd við færsluna og segir: „Þetta er bara hefnd fyrir einhverjar greinar i Stundinni.“
Annar bendir á að þetta sé ef til vill árangursrík aðferð til að féfletta ferðamenn. „Örugglega reka þó nokkrir erlendir ferðamenn upp stór augu - því alls ekki öll lönd eru með þessa (sérviskulegu) reglu.“