Ritstjórar Stundarinnar, parið Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, hafa fest kaup á glæsilegu raðhúsi á Seltjarnarnesi.
Smartland greindi fyrst frá en um er að ræða 262 fermetra raðhús sem byggt var árið 1982. Líkt og Hringbraut greindi frá fyrr í dag ríkti mikil gleði meðal vina og vandamanna parsins í dag þegar þau opinberuðu ást sína.
Líkt og sjá má á myndunum hér að neðan mun ekki væsa um parið og ritstjórana. Bæði eiga þau börn frá fyrri samböndum og mun eflaust fara vel um mannskapinn í húsinu við sjóinn.
Sjá einnig: Ritstjórar Stundarinnar stíga fram eftir tíðindi dagsins: „Loksins!“