Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, telur að Samfylkingin muni styðja Sjálfstæðisflokkinn aftur til valda eftir næstu þingkosningar.
Jón Þór gerir viðtal Stundarinnar við Kristrúnu að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en í viðtalinu kom fram að hún muni boða samstöðustjórnmál. Flest bendir til þess að Kristrún verði næsti formaður Samfylkingarinnar en hún ein hefur tilkynnt um framboð til formanns á landsfundi flokksins í haust.
Jón Þór segir að ef hugtökin samstöðustjórnmál og hægri krati séu lögð saman verði útkoman þessi: „Samfylkingin styður Sjálfstæðisflokkinn aftur til valda og Samfylkingarfólk fær að borða skít í 4 ár - Sorglegt en líklega satt. Ég skal taka veðmáli 1 á móti 10 að XD verður ekki útilokað fyrir næstu kosningar eins og síðast ef hún verður formaður XS,“ segir Jón Þór.
Kjartan Valgarðsson, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, segist spá því að færsla Jóns Þórs muni eldast illa. Jón Þór er þó tilbúinn í veðmál og segist munu styðja Samfylkinguna um þúsund kall ef Samfylkingin útilokar XD fyrir næstu kosningar. Ef ekki muni Kjartan styðja Pírata um hundrað kall.
„Ég er í stúku og veðja ekki. En geymi þessa færslu til 2025 og nudda þér þá upp úr henni,“ svarar Kjartan.