Jón Þór segir þessa á­kvörðun hafa breytt lífi sínu: „Það eru svo mörg augna­blik þar sem maður er þakk­látur“

Jón Þór Ólafs­son fyrrum þing­maður Pírata segir að fyrir fimm árum gaf líkaminn honum 10 kíló í fer­tugs­af­mælis­gjöf.

„Ég var alltaf grannur en vandist þessu ó­trú­lega fljótt. Var bara “á­nægður” með vel­megunar vömbina. En fyrir minn líkama þýddi þetta líka aug­ljósar hrotur sem trufluðu svefn konunar minnar og falinni kæfis­vefn svo ég vaknaði þreyttur og hafði ekki orku til að hreyfa mig. Prófaði föstur og ketó og að klippa út kol­vetni. Borðaði lítið og mikið. Breytti engu. Það tók svo ekki nema tvö ár af hreyfingar­leysi í „þægi­legri inni­vinnu” fyrir líkamann að hrynja. Hægri öxlin lítið not­hæf og verkjuð, sú vinstri stíf með stirð­leika upp í háls og svo vont tak í bakið. Ekkert þol og öll hreyfing að verða erfiðari og erfiðari,“ skrifar Jón Þór í pistli á Vísi.

„Ég var að byrja að venja mig við þá hugsun að ég væri bara að verða gamal­menni. Konan mín var ekki að sætta sig við það og bauð mér með sér í Hot Yoga fyrir byrj­endur hjá Agnari Diego. Það á­huga­verða var að því þreyttari sem ég var þegar ég fór í Hot Yoga, því betur leið mér og því meiri orku hafði ég eftir tíman. Hálfu ári síðar er hægri öxlin eins og ný og bakið miklu betra.“

„Ég krufði það hvernig Agnar hefur hannað Hot Yoga tímana sína. Því­lík snilld! Það eru svo mörg augna­blik þar sem maður er þakk­látur og á­nægður að hafa mætt, sem hefur sál­fræði­leg á­hrif á að maður vilji mæta næst. Öll líkams­rækt virkar, en að­eins ef maður mætir. Ég hef hreyft mig mesta ævina en ekki nennt í ræktina. Mig langar alltaf í Hot Yoga tíma hjá Agnari. Hvíld í heitum sal í upp­hafi sem flæðir inn í vina­leg inn­gangs­orð sem leiða okkur af stað í tempó sem keyrist upp þar til maður verður svo þakk­látur fyrir hvíldina og kaldan vatns sopan (takið ein­angraðan brúsa). Dá­sam­legt :)“ skrifar Jón Þór.

„Vinstri öxlin losnaði svo í tíma hjá Ellý Ár­manns, og takið líka upp í stífan háls sem hefur verið mjög við­kvæmur. Konan mín bauð mér með í Hot Body nám­skeið hjá Ellý sem er alls herjar líkams­vinna í heitum sal með djúp teygjum í lokin. Eftir fyrsta tíma þá vildi ég helst gubba. Núna eftir að­eins fimm tíma er þolið miklu meira og ég finn hvað vöðvarnir eru að styrkjast. Í bónus þá losnaði svo loksins vinstri öxlin og stíf­leikinn í hálsinum með einni einustu djúpteygju við herða­blöðin. Eftir mörg ár get ég loksins klappað sjálfum mér alls staðar á bakinu. Það er aug­ljóst að Ellý stundar ekki bara líkams­rækt, hún lifir líkams­rækt, og henni tókst með gríðar­legum á­huga og á­kafa sem samt er mildur, að planta þeirri trú hjá mér að ég muni aftur verða hraustur í líkama sem gott er að lifa í,“ skrifar Jón Þór og þakkar fyrir sig.

„Takk fyrir mig :) og sjáumst í næsta tíma.“