Jón Þór kallar Sigurð Inga aula: „Þá er mér að mæta“

„Skammar­legt hjá sam­göngu­ráð­herra. Ef hann reynir að koma vega­gjöldum á vegna á­hrifa kóróna­veirunnar þá er mér að mæta,“ segir Jón Þór Ólafs­son, þing­maður Pírata.

Jón Þór vandar Sigurði Inga Jóhanns­syni, sam­göngu- og sveitar­stjórnar­ráð­herra, ekki kveðjurnar í færslu á Face­book. Til­efnið er frum­varp um sam­vinnu­verk­efni sem Sigurður Ingi hefur lagt fram, en það myndi heimila Vega­gerðinni að eiga sam­vinnu við einka­aðila um fjár­mögnun, hönnun, undir­búning og fram­kvæmdir við sex á­kveðin verk­efni.

„Þá verður heimilt að fjár­magna sam­vinnu­verk­efni að hluta eða öllu leyti með gjald­töku af um­ferð,“ segir á vef stjórnar­ráðsins þar sem fjallað er um frum­varpið.

Verk­efnin sem lagt er til að unnin verði sem sam­vinnu­verk­efni eru hring­vegur norð­austan Sel­foss og brú á Ölfus­á, hring­vegur um Horna­fjarðar­fljót, Axar­vegur, tvö­földun Hval­fjarðar­ganga, hring­vegur um Mýr­dal og jarð­göng í Reynis­fjalli og Sunda­braut.

Jón Þór telur að Sigurður Ingi sé að reyna að koma á veg­gjöldum í skugga kórónu­veirunnar, en Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata og sam­flokks­maður Jóns Þórs, telur ó­senni­legt að kórónu­veiran hafi nokkuð með frum­varpið að gera.

„Þetta er búið að vera planað lengur en það ... þannig að þetta er ekki vegna kóróna­veirunnar sem þetta frum­varp er að koma,“ segir Björn.

Jón Þór segir í at­huga­semd í þræðinum að Sigurður Ingi ætti að draga frum­varpið til baka. „En hann er samt að leggja þetta fram þegar það er hættu­á­stand, og hvað, vill hann bara leggja það fram en ekki að unnið sé að því? Því­líkur auli […] Hann ætti að sjá sóma sinn í því að draga frum­varpið til baka í stað þess að freista þess að fá þetta á dag­skrá á þessu þingi.“

Líneik Anna Sæ­vars­dóttir, þing­kona Fram­sóknar­flokksins, skiptist svo á nokkrum orðum við Jón Þór. Hún tekur undir með Birni Leví og segir að málið hafi legið fyrir Al­þingi í sam­göngu­á­ætlun frá því í nóvember. Jón Þór spyr á móti hvort eigi að rétt­læta vega­tolla vegna á­hrifa kórónu­veirunnar. Því svarar hún að bragði: „Þetta er annað mál en vega­tollar.“