Jón Þór kærir til lögreglu

Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi þingmaður og umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu fyrir mögulegt kosningasvindl.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein Jóns Þórs á vef Vísis.

„Kæran byggir á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa (URK) og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni,“ segir Jón Þór í grein sinni og nefnir nokkur atriði máli sínu til stuðnings.

Hann segir að gögn undirbúningsnefndarinnar sýni að oddviti yfirkjörstjórnar hafi skapað sér með lögbroti tækifæri til að svindla á atkvæðunum í Alþingiskosningum. Þá hafi hann hraðað svo endurtalningu atkvæðanna þannig að lögbundið eftirlit var ómögulegt. Loks hafi oddvitinn farið rangt með í gerðabók, í fjölmiðlum, fyrir þingnefnd og lögreglu þau málsatvik sem benda á mögulega sekt hans.

Bendir Jón á í grein sinni á að oddviti hafi verið einn með óinnsigluðum atkvæðum í rúman hálftíma og ein mínúta nægi til að rangfæra atkvæðagreiðsluna með strokleðri og blýanti.

Hægt er að lesa grein Jóns Þórs í heild sinni hér.