Jón: „Þetta eru einfaldlega vörusvik“ – Vill að ríkið krefjist bóta vegna COVID-bóluefna

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, segir að ríkið ætti í raun að krefjast skaðabóta frá lyfjafyrirtækjunum vegna virkni bóluefna gegn COVID-19.

Þetta segir Jón í pistli á heimasíðu sinni. Jón hefur farið mikinn í umræðunni um aðgerðir gegn COVID-19, en eins og margir muna var hann lögmaður konu sem var skikkuð til að dvelja í farsóttarhúsi ásamt dóttur sinni í fyrravor.

„Það er fullyrt af sérfræðingum í Covid 19 fræðum, að miklu skipti að borgararnir mæti til að láta bólusetja sig í þriðja skiptið með Pfiser bóluefninu. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir telur að þriðja bólusetningin geti skipti öllu máli og komið í veg fyrir smit og alvarleg veikindi,“ segir Jón og bætir við að á sama tíma komi fram „bergmál fasismans“ um að refsa þeim sem láta ekki bólusetja sig.

„En afhverju á að refsa þeim? Valda þeir einhverri hættu gagnvart þeim sem eru fullbólusettir með þriðja skammtinum? Ekki nema að þriðji skammturinn dugi ekki. Rökfræðilega verður ekki komist að annarri niðurstöðu en þeirri, að þeir sem vilja skerða frelsi þeirra sem vilja ekki láta bólusetja sig vegna hagsmuna fullbólusettra, að það sé vegna þess, að þriðja bólusetningin skipti litlu sem engu máli.“

Jón segir að ef þriðja bólusetningin kæmi í  veg fyrir smit og alvarleg veikindi, þá skipti engu máli þó einhverjir „faríar þráuðust við“ og neituðu að láta bólusetja.

„Það eru ekki þeir sem neita að láta bólusetja sig sem bera einhverja sök. Þeir sem bera sök, eru þeir sem eru búnir að selja bóluefni fyrir hundruð milljarða. Bóluefni sem duga ekki. Af hverju eru stjórnmálamenn um víða veröld svona skyni skropnir að átta sig ekki á því. Þetta eru einfaldlega vörusvik,“ segir Jón og bætir við að út frá neytendarétti ætti ríkisstjórnin að krefja lyfjafyrirtækin um bætur. Þau hafi verið selja ónýta vöru eða í besta falli vöru sem gagnast lítið til þess sem hún á að gera.

„Það er mergurinn málsins en ekki þeir sem vilja ekki láta bólusetja sig með lyfi, sem lyfjaframleiðendurnir sem maka krókinn á tá og fingri, hundruð milljarða, vilja enga ábyrgð bera á glundrinu sínu. Svo segir formaður Framsóknarflokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, að það komi vel til greina að óbólusettir þurfi að sæta afarkostum. Er þessum hrímþursum sjálfrátt. Hvar er hin rökfræðilega forsenda þess?“