Jón Steinar vill mæta Rósu Björk og Þórhildi augliti til auglitis

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögreglumaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, hefur skorað á þingkonurnar Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að mæta honum augliti til auglitis á opnum fundi.

Jón Steinar skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem þessi áskorun er birt.

Tilefnið er umræða síðustu daga um þá ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að fela Jóni Steinari að skoða leiðir til að stytt málsmeðferðartíma í réttarvörslukerfinu. Þetta fór öfugt ofan í marga og var Jón Steinar sakaður um að hafa grafið undan trúverðugleika brotaþola kynferðisofbeldis í gegnum tíðina. Þá var fullyrt að hann hefði hvatt þolendur til að fyrirgefa ofbeldismönnum sínum. Jón Steinar segir að þetta hafi allt verið tekið úr samhengi.

„Sagðar voru af því fréttir fyrir skemmstu að dómsmálaráðherra hefði falið mér að vinna að tillögum um styttingu á málsmeðferðartíma í af brotamálum. Þetta kveikti undarleg viðbrögð hjá fólki sem segir mig vera sérstakan andstæðing þolenda kynferðisbrota og vörslumann hagsmuna brotamanna á þessu sviði af brota. Verkefni mitt varðaði svo sem ekkert sérstaklega þennan flokk afbrota en afstaðan gegn mér gerði það,“ segir Jón Steinar en meðal þeirra sem gagnrýndu ákvörðunina voru þingkonurnar Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

„Taldi Rósa Björk að dómsmálaráðherra hefði „hent kaldri tusku“ framan í almenning með því að fá mér þetta verkefni. Þórhildur Sunna taldi mig hafa tekið ámælisverða afstöðu með því að hvetja þolendur af brota til að fyrirgefa dæmdum brotamanni fremur en að hatast við hann til frambúðar. Það var eins og hún teldi mig hafa sagt þetta í þágu brotamanns en ekki þolendanna. Það var auðvitað misskilningur,“ segir Jón Steinar sem heldur áfram:

„Það er frekar sérkennilegt að veitast að persónu minni á þann hátt sem hér var gert til afnota fyrir árásir á dómsmálaráðherra. Ekkert tilefni er til þess. Í gegnum þessar árásir skín hreinn misskilningur eða útúrsnúningur á skoðunum mínum á af brotum á þessu sviði.“

Af þessum ástæðum hefur Jón Steinar óskað eftir því að þingkonurnar fallist á að mæta honum á opnum fundi til að ræða þessar „árásir“ sem Jón Steinar nefnir.

„Fyrir fram myndum við þurfa að semja um stað og stund og fyrirkomulag á umræðum svo jafnræðis yrði gætt milli öndverðra sjónarmiða. Öllum fjölmiðlum yrði auðvitað heimill aðgangur að fundinum. Ég sendi þessa orðsendingu til Fréttablaðsins, sem sérstaklega hefur tekið þetta mál upp á arma sína. Kæmi til dæmis til greina að Aðalheiður Ámundadóttir lögfræðingur, blaðamaður á Fréttablaðinu, yrði fundarstjóri, en ég hef hana grunaða um að hafa samúð með gagnrýnendum mínum.“