Jón Steinar veltir fyrir sér hæfni dómara við Hæstarétt: „Um þetta vissi eng­inn þá“

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, fjallar um áhugavert mál sem varðar Hæstarétt Íslands í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Jón Steinar skrifar:

„Hinn 22. júní sl. kvað Hæstirétt­ur Íslands upp dóm, þar sem kom­ist var að þeirri niður­stöðu að Markús Sig­ur­björns­son hefði upp­fyllt hæfis­kröf­ur til að dæma í saka­máli gegn manni, sem hafði ásamt fleir­um verið sakaður um að bera ábyrgð á falli Íslands­banka hf. á ár­inu 2008. Fyr­ir lá að Markús hafði tapað 7,6 millj­ón­um króna við fall bank­ans, en fjár­hæðin var að verðgildi um 13-14 millj­ón­ir, þegar hann tók þátt í að kveða upp dóm yfir mann­in­um á ár­inu 2015. Um þetta vissi eng­inn þá.“

Þá víkur Jón Steinar sér að máli dómara og launa þeirra sem hefur verið til mikillar umræðu síðustu daga, en þeir fengu ásamt öðrum of mikið greitt fyrir sín störf, og hefur þess verið krafist að þeir endurgreiði launin sem þeir fengu ofgreidd.

„Nú er rætt um að starf­andi dóm­ar­ar hygg­ist bera und­ir dóm­stóla rétt­mæti frá­drátt­ar frá laun­um sín­um vegna of­greiðslu á síðustu þrem­ur árum, sem mun standa til að fram­kvæma á næstu 12 mánuðum. Fjár­hæðir hjá hverj­um og ein­um dóm­ara nema aðeins nokk­ur hundruð þúsund krón­um, eða broti af fjár­hæðinni hjá Markúsi dóm­ara.

Samt virðast all­ir vera sam­mála um að starf­andi dóm­ar­ar verði vegna hags­muna sinna van­hæf­ir til að sitja í dómi þar sem um þetta verður dæmt.“

Að lokum spyr Jón Steinar hvort að á íslandi gildi tvenns konar lög: „Kannski að í land­inu gildi tvenn lög, al­menn lög og kunn­ingja­lög?“