Jón Steinar telur Ómíkron ekki réttlæta aðgerðir: „Drykkjuskapur, heimilisofbeldi, sjálfsvíg og gjaldþrot“

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, setur stór spurningamerki við sóttvarnaraðgerðirnar í grein í Morgunblaðinu í dag. Er ekki hægt að skilja hann öðruvísi en hann telji Ómíkro-afbrigði Covid-19 sem gengur nú yfir samfélagið ekki réttlæta sóttvarnaraðgerðirnar.

„Hafa menn áttað sig á hvers kon­ar ástandi hef­ur verið komið á hér á landi um þess­ar mund­ir?,“ spyr hann.

„Stjórn­völd í land­inu reyna að hefta út­breiðslu veiru með því að fyr­ir­skipa mönn­um að fara í svo­kallaða sótt­kví eða ein­angr­un og er þá ekki skil­yrði að viðkom­andi maður beri í sér veiruna; nóg er að hann hafi hitt ein­hvern sem ger­ir það.“

Jón Steinar segir að það ligg­i fyrir að Ómíkron afbrigði Covid-19 valdi ekki veik­ind­um, eða svo litl­um og hjá svo fáum að engu máli skipt­ir.

„En sótt­varna­lækn­ir tek­ur ákv­arðanir um þetta og stjórn­mála­menn­irn­ir sem við höf­um kosið yfir okk­ur þora ekki annað en að hlýða,“ segir hann.

„Engu máli skipt­ir við þess­ar til­gangs­lausu ákv­arðanir að fjöldi manna verður fyr­ir al­var­legu tjóni vegna þeirra. Þar eru drykkju­skap­ur, heim­il­isof­beldi, sjálfs­víg og gjaldþrot of­ar­lega á blaði. Og ef þú hlýðir ekki þess­um fyr­ir­mæl­um stjórn­vald­anna verður þú sektaður.“