Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, segir að baráttuhópinn Öfgar hafa snúið út úr orðum sínum með því að segja að hann vilji að þolendur taki ábyrgð eða þurfi að breyta hegðun sinni til að forðast kynferðisbrot.
Baráttuhópurinn Öfgar sendi í gær frá sér svar við grein Jóns Steinars í Morgunblaðinu á dögunum. Í bréfi Öfga segir að viðhorf Jóns Steinars sé aldagamalt. „Ofbeldi er aldrei á ábyrgð þolenda, það er ávallt á ábyrgð gerenda. Þolendur hafa skilað skömminni. Jón Steinar, vinsamlegast ekki reyna að þröngva henni upp á okkur aftur.“
Jón Steinar segir í grein á vefsíðu sinni að hann hafi aðeins verið að senda frá sér hvatningu til þeirra sem útsettir eru fyrir hættu á að verða beittir kynferðisofbeldi sem og hinna sem gætu orðið ofbeldismenn. „Var þessu fólki bent á að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir brotin eða að minnsta kosti að fækka þeim, því kannski getum við aldrei komið í veg fyrir að þau verði framin,“ segir hann.
Jón Steinar býr svo til dæmi máli sínu til stuðnings um konur sem taki byrlunarlyf á leið á djammið, megi hann þá ekki hvetja þær til að hætta því: „Væri ekki við hæfi að hvetja konur til þess að hætta því, svo þær væru ekki varnar- og meðvitundarlausar á skemmtistöðum borgarinnar? Væri sú hvatning fallin til þess að varpa ábyrgð kvenna á þeim glæpum sem þær yrðu fyrir á þær sjálfar? Nei, því jafnvel þá bæru þolendur enga ábyrgð á verknaði gerendanna, þótt draga hefði mátt úr líkum á brotunum,“ segir hann.
Segir Jón Steinar að ef grein hans forði einni konu frá því að vera nauðgað yrði hann sáttur. „Sumir telja það stundum geta orðið málstað til framdráttar að búa til andstæðing jafnvel með því að skrökva á hann sökum. Það er misskilningur hjá ykkur ef þið haldið að þessi aðferð sé vænleg gagnvart mér. Ég hef skömm á ofbeldismönnum og er miklu fremur samherji ykkar en fjandmaður.“