Jón Steinar segir réttarríkið í þröng: Menn missa vinnuna og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi dómari, segir að ófremdarástand hafi ríkt hér á landi um nokkurt skeið.

Í pistli sem hann skrifar á heimasíðu sína segir hann að eftir hrunið hafi menn verið sakfelldir á ófullnægjandi forsendum og engu hafi verið líkara en að dómarar hafi verið að friðþægja almenning. Hann segir að þetta séu ekki einu dæmin um þá frumstæðu hegðun sem huglæg afstaða til sakborninga eða sakarefnis dómsmála framkallar hjá fólki.

„Dæmi um það eru kynferðisbrotin. Í þeim málaflokki gildir auðvitað sú gullvæga meginregla, sem við varðveitum m.a. í stjórnarskrá okkar og kveður á um að menn skuli teljast saklausir af refsiverðum brotum þar til sekt þeirra hafi verið sönnuð, þannig að ekki sé skynsamlegur vafi á sökinni,“ segir hann og heldur áfram:

„Við þekkjum öll vel það ófremdarástand sem tekið hefur að ráða ríkjum í samfélaginu, þegar einstakir menn hafa verið sakaðir um svona afbrot, sem þeir neita sjálfir að hafa drýgt, og engin sönnun liggur fyrir um. Þeir eru einatt látnir taka öllum hinu verstu samfélagsáhrifum af meintum brotum, án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér. Dæmin eru þau að þeir missi atvinnu sína og eigi þess engan kost að fá nýtt starf annars staðar.“

Jón Steinar segir að hér sé í raun vikið til hliðar þeim þýðingarmiklu grundvallarreglum, sem standa undir því að við getum kallað samfélag okkar siðmenntað og talið það til réttarríkja.

„Og ráðist er á þá borgara sem leyfa sér að koma svona sakborningum til varnar á þeim grundvelli að sök þeirra sé ósönnuð, og að okkur beri að virða hvers kyns réttindi þeirra meðan svo er. Sjálfur hef ég haldið uppi málflutningi um þetta í þágu hins siðaða samfélags og hef af því tilefni orðið fyrir ásökunum um að vilja styðja ofbeldismenn.“

Jón Steinar segist bara vera bláeygur drengur úr Hlíðunum sem hafi megna óbeit á hvers kyns ofbeldi.

„Við sem viljum að réttarríkið ráði líka á erfiðum málasviðum, eins og þeim sem hér um ræðir, viljum ekki láta undan þeirri framkomu fjölmargra borgara að sakfella yfirleitt alla sem bornir hafa verið sökum af þessu tagi. Ég segi bara við mannfólkið: Reynið að skilja að miklu þýðingarmeiri verðmæti eru í húfi en þau sem leyfa ykkur að bera ósannaðar refsiverðar sakir á samborgara ykkar.“