Jón Steinar ó­sáttur við Róbert: „Þetta eru vond tíðindi“

Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður og fyrr­verandi hæsta­réttar­dómari, segir það vond tíðindi að Róbert Spanó, for­seti Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu, hafi tekið við viður­kenningu frá Tyrkjum.

Jón Steinar skrifar um málið í Morgun­blaðið í dag, en eins og greint var frá fyrir helgi var Róbert sæmdur nafn­bót heiðurs­doktors við há­skólann í Istanbúl. Prófessorar við skólann voru meðal þeirra sem voru reknir og fangelsaðir í tengslum við valda­ráns­til­raun í landinu sumarið 2016.

„Þetta eru vond tíðindi. Sér­stak­lega að dómarinn skuli þiggja svona fjólur af ríki sem allir vita að reglu­lega for­smáir vernd mann­réttinda og hefur þurft að verjast fjöl­mörgum kærum fyrir MDE undan­farin misseri, m.a. fyrir brot á tjáningar­frelsi borgara sinna. Þegar Róbert var spurður um á­stæður þess að hann tók við þessum gælum svaraði hann því til að hefð væri fyrir því að dómarar við dóm­stólinn gerðu það þegar aðildar­ríki ætti í hlut. Svarið er frekar bág­borið svo ekki sé meira sagt,“ segir Jón Steinar.

Hann segir að í raun ættu dómarar við Mann­réttinda­dóm­stólinn aldrei að þiggja svona viður­kenningar frá aðildar­ríkjunum.

„Aldrei. Ríkin eru aðilar til varnar í kæru­málum sem berast til dóm­stólsins. Það er því ekki við hæfi að dómarar taki við at­lotum þeirra. Slíkt hlýtur að rýra traust manna til dóm­stólsins. Allra helst á þetta við þegar í hlut á ríki sem er blóðugt upp fyrir axlir af mann­réttinda­brotum sínum eins og Tyrkir eru. Róbert hefði hrein­lega átt að nota þetta tæki­færi til að upp­ræta hefðir af þessum toga, hafi þær yfir­höfuð verið fyrir hendi,“ segir Jón Steinar í grein sinni og ber upp nokkrar spurningar:

„Hvers vegna heldur Róbert Spanó að Tyrkir hafi viljað hengja á hann orðu? Dettur honum ekki í hug að það kunni að vera vegna viljans til að gera hann vin­veittan þeim stjórn­völdum í þessu landi, sem sí­fellt þurfa að verja hendur sínar fyrir dóm­stólnum? Mun hann láta það eftir þeim? Það er auð­vitað for­smán ef dómarar við dóm­stólinn eru svo hégóm­legir að vilja þiggja svona viður­kenningar fremur en að af­þakka þær í þágu þeirra hags­muna sem þeim hefur verið trúað fyrir að gæta í þágu al­mennra borgara í aðildar­ríkjum að dóm­stólnum. Það er sorg­legt að ís­lenski dómarinn við dóm­stólinn skuli falla á kaf í þennan pytt. Vonandi drukknar hann ekki.“

Jón Steinar er ekki sá eini sem hefur gagn­rýnt Róbert en Ingi­björg Sól­rún Gísla­dóttir, fyrr­verandi utan­ríkis­ráð­herra, gagn­rýndi á­kvörðun Róberts einnig í gær.