Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, klórar sér í kollinum yfir aðgerðaleysi stjórnvalda þegar kemur að lagareglum um dómstóla. Jón Steinar skrifar pistil um málið á vef sinn og segir að ítrekað hafi verið bent á þessa annmarka.
„Ég hef um árabil fjallað um þetta í ræðu og riti og fært fram lýsingu á staðreyndum sem enginn hefur getað efast um að séu réttar.Nú síðast sendi ég frá mér hlaðvarpsþætti (sex talsins) þar sem farið er yfir meginreglur sem dómstólum ber að virða í störfum sínum og nefni dæmi um að freklega hafi verið brotið gegn þeim.“
Jón Steinar bendir á að í síðasta þætti sínum hafi hann rætt umbætur á lögum sem auðvelt ætti að vera að koma á til að bæta þessa þýðingarmiklu starfsemi svo um munar.
„Af einstökum breytingum er þýðingarmest að afnema sjálfdæmi dómaraelítunnar um val á nýjum dómurum í Hæstarétt. Á því sviði liggja fyrir handföst dæmi um misnotkun á valdi til þess arna. Þannig eru bein dæmi um að við mat á umsækjendum sé breytt um viðmiðanir milli ára í því skyni að hefja vini og kunningja upp yfir aðra sem sitjandi dómurum kann að vera í nöp við.“
Jón Steinar segir að þetta hafi allir séð og margir lögfræðingar fjallað um á opinberum vettvang. „En það er eins og stjórnmálamönnum sé alveg sama,“ segir hann og kallar eftir því að ný ríkisstjórn taki þetta verkefni að sér. Hann hefur þó ekki mikla trú á því.
„Ég spái því að ekki muni sjást orð um þetta í komandi sáttmála um stjórnarmyndun. Þetta er eins og logandi eldhnöttur sem enginn þorir að taka á, þó að staðreyndirnar liggi fyrir og auðvelt sé að gera lagabreytingar til umtalsverðra bóta. Kannski stjórnmálamennirnir séu að bíða eftir að þeir sjálfir eða ástvinir þeirra þurfi að prófa þetta spillta kerfi á sjálfum sér? Á meðan eru aðrir borgarar látnir bera skaðann af spillingunni. Reynið frekar að vakna og gera strax þær úrbætur sem gera þarf.“