Jón Steinar: Jón Gunnarsson ætti frekar að fá hrós – Átakanlegt að fylgjast með umræðunni

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, kemur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra til varnar í nýjum pistli á heimasíðu sinni.

Fast hefur verið sótt að Jóni að undanförnu vegna málefna flóttafólks og hælisleitenda, en eins og fram hefur komið stendur til að framfylgja brottvísunum fjölmargra einstaklinga á næstu vikum nú þegar Covid-faraldurinn er að baki að mestu.

Þetta hefur fallið illa í kramið hjá mörgum enda margir þessara einstaklinga búnir að dvelja hér á landi í hátt í þrjú ár og komnir með tengsl við landið.

Þjóðin fer á límingunum

Í pistli sínum bendir Jón Steinar á að lög um útlendinga séu frá árinu 2016 og þar sé kveðið á um málsmeðferð þegar útlendingar óska eftir að fá vist á Íslandi. Jón nefnir réttilega að afgreiðsla mála hafi frestast vegna faraldursins en nú sé sá tími liðinn og eðlilegt ástand komið aftur, svo að segja.

„Samkvæmt lögunum afgreiða sérstakar stjórnsýslustofnanir beiðnir útlendinga um landvist og búsetu hér. Þar fer kærunefnd útlendingamála með vald á áfrýjunarstigi. Henni ber auðvitað að starfa eftir íslenskum lögum. Nú hefur hún synjað allmörgum útlendingum um leyfi til að setjast hér að,“ segir Jón Steinar og bætir við að þá sé eins og stór hluti þjóðarinnar fari á límingunum.

„Ráðist er á dómsmálaráðherrann sem ekki hefur tekið þessar umdeildu ákvarðanir, heldur kveðst aðeins vilja fara að lögum landsins og framfylgja þeim ákvörðunum sem rétt stjórnvöld hafa tekið. Hann sætir nú hreinum ofsóknum. Þar ganga m.a. fast fram alþingismenn, sem sumir hverjir tóku þátt í lagasetningunni. Biskup Íslands og a.m.k. einn hempuklæddur orðafeykir taka þátt í árásununum,“ segir Jón Steinar og vísar þar í Davíð Þór Jónsson, sóknarprest í Laugarneskirkju.

Átakanlegt að fylgjast með

„Krafan virðist vera sú að því aðeins beri að fara eftir lögum að mönnum líki efni þeirra í einstökum málum. Grunnreglum, t.d. um þrískiptingu ríkisvaldsins, skal vikið til hliðar fyrir geðþóttann. Alþingismenn ættu að hrósa ráðherra fyrir að virða lögin í stjórnsýslu sinni. Þeir geta svo á vettvangi löggjafans, ef þeir vilja, flutt frumvörp um breytingar á lögunum sem ráðherra hefur heitið að fara eftir,“ segir Jón Steinar sem klykkir út með þessum orðum:

„Það er stundum átakanlegt að fylgjast með menningarstiginu sem birtist í almennum umræðum á Íslandi um málefni þjóðfélagsins.“