Jón spyr hvort fólki eigi að hafa skotvopn á heimili sínu: „Þeir sem fara til veiða gætu hæg­­lega leigt skot­vopn í stað þess að eiga“

Sagn­fræðingurinn Jón Ólafur Ís­berg segir að nú­verandi skot­vopna­lög­gjöf sé ekki nóg til að koma í veg fyrir skot­á­rásir. Hann veltir því upp hvort að ein­staklingar sem eiga skot­vopn sem geta banað fólki eigi alltaf að hafa að­gang að þeim?

„Voða­­verk var framið á Blöndu­ósi um helg­ina. Veikur maður réð­ist til at­lögu með skot­vopni og ban­aði einum og annar ein­stak­lingur liggur hels­ár á sjúkra­húsi. Stutt er síðan maður skaut af byssu rétt hjá leik­­skóla í Hafn­ar­­firði, í febr­úar á þessu ári var skotið á tvö ung­­menni í Graf­ar­holti og í fyrra var ölv­aður byssu­­maður yfir­­bug­aður á Egils­­stöð­um. Svip­aðir at­burðir hafa átt sér á Norð­ur­löndum á und­an­­förnum árum. Þar hafa á­rás­irnar m.a. átt sér stað í versl­un­ar­mið­­stöðvum þar sem margir hafa lát­ist. Hugs­an­­lega munu svip­aðir at­burðir ger­ast hér á landi. Spurn­ingin er lík­­lega ekki hvort heldur hve­nær og þá er á­stæða til að spyrja hvort hægt að koma í veg fyrir slíkt,“ skrifar Jón í grein á Kjarnanum.

„Alls eiga Ís­lend­ingar um 70.000 lög­­leg skot­vopn og þar eru hagla­byssur lang­vin­­sælast­ar. Þær eru tæp­­lega 40.000, rifflar rúm­­lega 25.000 og at­hygli vekur að skráðar skamm­byssur eru nærri 4.000 tals­ins. Skráðar fjár­byss­ur, flestar hjá bænd­um, eru tæp­­lega 1.500. Engin tak­­mörk eru fyrir því hversu margar byssur hver og einn má eiga. Skot­veiði hefur lengi fylgt Ís­lend­ingum og skot­vopn eru einnig vin­­sælt á­huga­­mál. Til að eign­ast byssu þarf að hafa skot­vopna­­leyfi, þreyta próf og fylla út alls kyns eyðu­blöð, vera með öruggan geymslu­­stað heima hjá sér fyrir byss­urnar og fylgja lögum og regl­um.“

„Dugar þetta til að koma í veg fyrir hugs­an­­lega skot­á­rás? Nei, auð­vitað ekki. Vopna­lög­­gjöf á Norð­ur­löndum er ekki ó­svipuð okkar og það hefur ekki stoppað ó­dæð­is­­menn­ina í að kom­ast yfir vopn og fremja voða­­verk. Þá er spurn­ing hvort ein­stak­lingar sem eiga skot­vopn sem geta banað fólki eigi að hafa alltaf að­gang að þeim? Held ekki. Flestir þeir sem eiga skot­vopn nota þau til að veiða og nú eru ekki lengur stund­aðar „frjálsar veið­ar“ sem fyrrum heldur þarf, í flestum til­­­fell­um, að kaupa eða sækja um leyfi og veið­arnar eru stund­aðar á af­mörk­uðum svæðum á til­­­teknum dög­um. Þeir sem fara til veiða, t.d. á rjúpu eða hrein­­dýr, gætu hæg­­lega leigt skot­vopn í stað þess að eiga það. Flestar veiðar eru tíma­bundnar og þess vegna lítil á­stæða til að vera með vopn á heim­il­um, jafn­vel þó þau séu í læstum skáp, alla aðra daga árs­ins. Gleymum því að eig­andi vopn­anna er jafn­­framt hand­hafi lyk­ils­ins af byssu­skápn­um.“

„Auð­vitað eru und­an­­tekn­ingar frá þessu en þá er hægt að koma til móts við und­an­­tekn­ing­arnar án þess að gera þær að meg­in­­reglu. Hægt væri með hag­­kvæmum hætti að koma upp byssu­­geymslum þar sem eig­endur geymdu sín skot­vopn á milli þess sem þeir fara til veiða eða til æfinga.“

„Al­menn skot­vopna­­eign Ís­lend­inga og geymsla vopna á heim­ilum mun lík­­lega fyrr eða síðar leiða til fleiri voð­­verka eins og áttu sér stað á Blöndu­ósi og átt hafa sér stað á Norð­ur­lönd­um. Með því að tak­­marka eign­ar­hald á skot­vopnum og koma upp byssu­­geymslu þar sem skot­vopnin eru geymd á þeim tíma sem þau eru sann­an­­lega ekki í notkun gæti hugs­an­­lega komið í veg fyrir voða­­verk eða a.m.k. minnkað lík­urnar á því að það ger­ist.“

„Það er á­stæðu­­laust að bíða eftir hugs­an­­legum harm­­leik þegar við getum með ein­­földum hætti reynt að lág­­marka mögu­­leik­ann á því að hann ger­ist,“ skrifar Jón að lokum.