Jón Páll sendir MS tóninn: „Hvet þá sem hafa á­huga til að skoða þetta“

„Ég myndi bara hvetja þá sem hafa á­huga til að skoða þetta, skoða hvaða vörur sam­keppnis­aðili Örnu hefur komið með á markaðinn undan­farna mánuði og ár,“ segir Jón Páll Hreins­son, bæjar­stjóri í Bolungar­vík og stjórnar­maður hjá mjólkur­vinnslunni Örnu ehf., í sam­tali við Hring­braut.

Jón Páll skrifaði grein sem birtist á vef Vísis í gær en um­rædd grein bar yfir­skriftina Hvernig losar þú þig við sam­keppnis­aðila – nokkur góð ráð handa ein­okunar­fyrir­tæki.

Þó Jón Páll nefni aldrei Mjólkur­sam­söluna á nafn í pistli sínum er aug­ljóst til hvaða fyrir­tækis hann er að vísa. Eins og nafn pistilsins gefur til kynna skrifar hann um þær leiðir sem ein­okunar­fyrir­tæki geta farið til að losa sig við sam­keppnis­aðila. Í fyrsta lagi nefnir Jón að ein­okunar­fyrir­tæki geti fram­leitt eins vörur og sam­keppnis­aðilinn.

„Nýir aðilar á markaði koma gjarnan inn með nýjar á­herslur í vöru­fram­boði. Þeir þróa vörur sem neyt­endum finnst vera spennandi og eru til­búnir að færa sig frá ein­okunar­fyrir­tækinu sem ekki hefur sinnt því sem skyldi. Með því að kópera ný­sköpun hins nýja sam­keppnis­aðila og þróa eins vörur (þótt þær heiti öðru nafni) minnkar þú sér­stöðu hans,“ segir hann í grein sinni.

Þá nefnir Jón Páll í pistli sínum að ein­okunar­fyrir­tæki geti ráðist beint á sér­stöðu litla sam­keppnis­aðilans. „Ef sam­keppnis­aðilinn hefur náð að skapa sér sér­stöðu, t.d. með því að bjóða uppá um­hverfis­vænar um­búðir, þá má alls ekki leyfa honum að komast upp með slíkt og bjóða um­svifa­laust upp á eins pakkningar. Ef þú getur ekki boðið uppá eins pakkningar, þá má breyta pakkningum og merkja þær um­hverfis­vænar.“

Jón Páll tekur það fram að hann sé ekki að saka Mjólkur­sam­söluna um lög­brot en í pistli sínum segir hann að þau fjögur ráð sem hann telur upp séu öll sið­laus. Þá tekur hann fram að hann sé á engan hátt hlut­laus aðili enda bæjar­stjóri Bolungar­víkur og stjórnar­maður í Örnu.

„Á engan hátt ætla ég að segja að MS hafi gerst brot­legir við lög, ég hef ekki hug­mynd um það. Hins vegar er ég bara að setja þetta fram svo fólk viti af þeim leiðum sem markaðs­ráðandi fyrir­tæki beita gjarnan á þessi minni fyrir­tæki,“ segir Jón Páll og bætir við að MS hafi rúm­lega 90 prósenta markaðs­hlut­deild.

Jón Páll bendir á að starf­semi Örnu sé gríðar­lega mikil­væg fyrir Bolungar­vík og honum sé mjög annt um vel­ferð fyrir­tækisins.

„30-40 starfs­menn hljómar kannski ekki mikið en skiptir svaka­lega miklu máli fyrir þúsund manna sam­fé­lag,“ segir hann og bætir við að Bolungar­vík væri ekki á þeim stað sem það er á í dag ef fyrir­tækið hefði ekki hafið starf­semi á staðnum.

„Það er ekki um auðugan garð að gresja á lands­byggðinni þegar kemur að sprota­fyrir­tækjum sem eru að skapa ný tæki­færi. Þess vegna er mér mjög annt um vel­ferð þessa fyrir­tækis og ég mun berjast með kjafti og klóm fyrir til­veru­rétti þess.“